Lífið

"Ég held að ég eignist ekki sex. Kannski þrjú eða fjögur“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kim nýtur sín í móðurhlutverkinu.
Kim nýtur sín í móðurhlutverkinu. vísir/getty
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er tilbúin til að eignast annað barn en hún og rapparinn Kanye West eiga saman dótturina North sem er orðin eins árs.

Kim segir í samtali við Ellen DeGeneres að hún sé orðin sjóuð í því að hugsa um mörg börn enda hafi hún passað fyrir systur sína, Kourtney Kardashian.

„Ég hugsaði um frænku mína, frænda og dóttur mína. Baðaði þau öll þrjú, gaf þeim að borða, klæddi þau í náttföt og svæfði þau. Ég var bókstaflega grátandi. Það var svo erfitt með þrjú börn. Ég veit ekki hvernig mamma gerði þetta með sex börn,“ segir Kim. Hún vill þó eignast fleiri börn.

„Ég ætla að eignast tvö og sjá hvernig gengur. Ég held að ég eignist ekki sex. Kannski þrjú eða fjögur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×