„Aldrei haldið því fram að þetta væru heildarlaunin“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 6. nóvember 2014 10:55 „Ég ætla ekkert að tjá mig um það hvað ég fékk fyrir austan á þessum tímabili." „
Ég hef aldrei haldið því fram að þetta væru heildarlaunin mín, sem voru á launaseðlinum sem ég birti,“ segir Þóra Elísabet Kristjánsdóttir, námslæknir, sem á dögunum birti launaseðil sinn vegna útgreiddra launa frá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Á launaseðlinum kom fram að heildarlaun hennar fyrir hundrað prósent vinnu voru tæpar 437 þúsund krónur, eða um 277 þúsund krónur eftir skatt. Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að hún hafi á sama tíma fengið um 1,5 milljónir króna fyrir störf sín hjá Heilsugæslunni á Egilsstöðum. Þóra Elísabet sagði í samtali við Morgunblaðið að hún hafi birt seðilinn til að sýna hversu lág launin væru fyrir hundrað prósent dagvinnu. Hún vildi þó ekki staðfesta launagreiðslu upp á 1,5 milljónir króna og sagði baráttu hennar snúast um mannsæmandi dagvinnulaun. Hún sé með aðskilda launaseðla,annars vegar fyrir dagvinnu og hins vegar fyrir yfirvinnu. Aðspurð hvort hún teldi slíka kjarabaráttu heiðarlega, að upplýsa aðeins um lítinn hluta launaseðla sinna sagði hún það engu máli skipta hvort hún sé á sólarhringsvöktum úti á landi daginn út og daginn inn, baráttan standi um að bæta dagvinnulaunin. Það væri ekkert launungarmál að hún starfi stundum úti á landi og í Noregi og hafi mun meira upp úr því en fyrir störf sín í Reykjavík. Það sé þó ekki hennar vilji – hún vilji ná endum saman á dagvinnulaunum í Reykjavík. Innlegg frá Þóra Elísabet Kristjánsdóttir.
Mest lesið Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Erlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Innlent Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Innlent Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Innlent Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Veður Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Innlent Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Erlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Fleiri fréttir Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Sjá meira