Lífið

Ný stjarna er fædd

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Leikkonan Nicola Peltz vakti fyrst athygli í kvikmyndinni The Last Airbender árið 2010. Hún leikur aðalkvenhlutverkið í nýju Transformers-myndinni og eru spekingar í Hollywood sammála um að hér sé á ferð næsta stórstjarnan. Þá er hún einnig talin mikið tískutákn og skartar ávallt hátísku á rauða dreglinum. 

Hver er Nicola?

* Fædd 9. janúar árið 1995 í New York

* Móðir hennar, Claudia, er fyrrverandi fyrirsæta og faðir hennar, Nelson, moldríkur athafnamaður sem átti einu sinni Snapple-merkið

* Á sjö systkini

* Byrjaði ung í fyrirsætubransanum

* Spilaði hokkí þegar hún var yngri

* Þreytti frumraun sína á sviði árið 2007 og lék á móti Jeff Daniels og Alison Pill í leikritinu Blackbird sem sett var upp af Manhattan Theatre Club

* Fékk tilnefningu sem versta leikkona í aukahlutverki á Razzie-verðlaununum fyrir hlutverk sitt í The Last Airbender

Í síðkjól frá Prada.
Í kjól frá Stellu McCartney.
Í kjól frá Fausto Puglisi.
Í dressi frá Dior.
Í kjól frá Gucci.
Í kjól frá Giambattista Valli Couture.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.