Lífið

Sölvi Fannar gefur heimilislausum manni að borða

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Þúsundþjalasmiðurinn Sölvi Fannar er einn leikara í tónlistarmyndbandi hljómsveitarinnar Angel at my table við lagið Broken.

„AAMT er ung og upprennandi hljómsveit frá Lúxemborg, tökuliðið var frá Englandi en myndbandið var tekið upp í París,“ segir Sölvi Fannar en hlutverk hans í myndbandinu var krefjandi.

„Í þessu myndbandi leik ég miskunnsama samverjann en myndbandið var allt tekið upp í Montmartre sem er eitt af uppáhaldshverfunum mínum í París.“

Leikstjóri myndbandsins er hinn breski Lewis Cater. Myndbandið má sjá hér neðst í greininni en Sölvi Fannar vildi sýna landsmönnum hvernig hann hugsaði hlutverkið og því fer hann í gegnum nokkra ramma í myndbandinu með lesendum Lífsins á Vísi:

„Í byrjun er ég að skima í kringum mig. Á allt að vera mjög óljóst. Hvað er þessi gaur eiginlega að gera?“

„Rölti svo í áttina að fatamarkaði. Þar sem ég vel föt með rassinn í myndavélina, draumastaða, eða þannig.“

„Fyrir heimilislausan mann, leikinn af frábærum dansk-ættuðum leikara sem hefur búið í  París í rúm 15 ár og heitir Lee Michelsen.“

„Því næst fer ég á ‘Au Marché de la Butte’ sem líklega margir þekkja úr kvikmynd sem mér fannst alla vega frábær: Amélie (Le Fabuleux Destin d'Amélie Poulain). Þar sem ég vel af mikilli kostgæfni ávexti fyrir heimilislausa manninn.“

„Leiklistarlega séð langaði mig að ná fram ákveðnum kontrast í því að þegar ég væri að ganga að heimilislausa manninum þá vildi ég að það yrði alls ekki augljóst að ég væri að fara að gefa honum eitthvað, jafnvel að örlaði á fyrirlitningu í svip mínum.“

„Ætlaði mér að ná fram að skapa óræða stöðu.“

„En skipta svo um gír og upplifa kærleika.“

„Það er stundum sælla að gefa en þiggja.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×