Lífið

Á sviði með Eiríki Fjalari, Dr. Saxa, Dengsa, Þórði, Skúla og Elsu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Gói og Laddarnir.
Gói og Laddarnir. mynd/úr einkasafni
„Það er voða spenna hjá okkur að hefja sýningar núna á sunnudaginn,“ segir leikarinn Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói, en ný sería af barnaþáttunum Stundin okkar fer í loftið á RÚV á sunnudaginn klukkan 18.00.  

„Nú í vetur fáum við fullt af skemmtilegum gestum og höldum áfram að fylgjast með lífinu í Stundarleikhúsinu. Ég hef alltaf lagt mikla áherslu á það í því barnaefni sem ég hef komið nálægt að vera með gott jafnvægi á milli gamans og alvöru. Við tökum á málefnum sem börn eru að glíma við eins og sorg og missir, fyrirgefning, græðgi og svo framvegis. Þetta er meðal annars það sem við munum fjalla um og reyna að setja í þannig búning að þetta verði sem aðgengilegast,“ bætir Gói við. Einn af hápunktunum í tökuferlinu fyrir Góa var að fá sjálfan Ladda á settið.

„Það var náttúrulega mikið fjör á setti enda þættirnir 28 talsins. Einn dagur sem ég mun aldrei gleyma var þegar Laddi var hjá okkur. Hann var heilan dag og fór í næstum öll gervin sín. Það var náttúrulega svo stórt móment fyrir mig að það hálfa væri nóg. Að fá að standa á sviði með Eiríki Fjalari, Dr. Saxa, Dengsa, Þórði, Skúla, Elsu var náttúrulega bara gæsahúð,“ segir Gói sem fékk meira að segja að taka lagið með gríngoðsögninni.

Vignir Snær samdi svo lag og ég texta sem við Laddi syngjum og persónurnar hans Ladda syngja viðlagið. Ég hlakka alveg svakalega til að sjá það og sýna. Þetta er hressandi lag sem fjallar um lestur. Sem á vel við í lestrarátakinu sem er að fara í gangi hér á landi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×