Lífið

Grátandi rúmenskur Ólympíufari í einvígi við Magnús Scheving

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
„Ég hugsaði að nú hlyti ég að brjóta öll beinin í líkamanum í beinni útsendingu,“ sagði Magnús Scheving í þættinum Logi á föstudagskvöldið.

Magnús, sem nýlega hætti að túlka persónu Íþróttaálfsins í sjónvarpsþáttunum Latabæ, rifjaði upp heldur vandræðalegt viðtal sem hann fór í í rúmenskum spjallþætti á nýlega. Túlkur átti að þýða allar spurningarnar fyrir hann en ekkert heyrðist nema skruðningar.

Einhvern veginn tókst Magnúsi að komast í gegnum viðtalið en ekki tók við þegar næsti gestur í spjallþættinum mætti til leiks. Sá gerði lítið annað en að gráta, var nýgenginn í gegnum skilnað en úr varð einvígi þeirra Magnúsar á gólfinu í þættinum.

Magnús segir söguna skemmtilegu í spilaranum hér að ofan. Hér að neðan má svo sjá brot úr rúmenska þættinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×