Lífið

Gaman að gefa notuðu nýtt líf

Þura Stína
Þura Stína
Þuríður Kr. Kristleifsdóttir, 24 ára, eða Þura Stína eins og hún er alltaf kölluð, býr í Þingholtunum og er rekstrarstjóri Dolly í Hafnarstræti ásamt því að vera nemandi í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands.

Skór Hef alltaf keypt allt of mikið af skóm og nota dagsdaglega hæla eða góða strigaskó, en sérstaklega á íslenskum haustdögum dr. martens. Þessir eru með þeim nýjustu sem ég fékk á útsölu í TopShop í sumar. Ég keypti alltaf allt of mikið af ódýrum skóm en það er miklu betra að reyna að kaupa færri og aðeins dýrari. Þeir endast mun lengur.
Jakki Þessa kápu keypti ég í grenjandi rigningu í Spúútnik á Laugaveginum. Ég var læst úti og illa klædd og varð því að finna eitthvað. Ég hef átt hana í mörg ár og þykir alltaf jafn vænt um hana. Hún er vintage og mjög vel með farin.
Svört slá Þessi er mér mjög hjartkær. Vinur minn gaf mér hana og hún er æðisleg til að poppa upp venjulegan bol eða outfit. Ég hef líka týnt henni margoft en alltaf fundið hana aftur á ólýsanlegum stöðum. Einu sinni var hún týnd í heilt ár en alltaf hefur hún ratað til mín aftur.
KimonoElska sniðin á kimono-um og nota þetta mikið. Ég hef það oftast bara laust en stundum set ég þunnt band utan um það og breyti sniðinu örlítið. Þetta kostaði mig ekki mikið en ég fékk það í Forever 21 í Boston.
Rauð taskaÞessa tösku nota ég nánast á hverjum einasta degi. Hún er nógu stór til að geyma allt það helsta í skólann, sundið eða ræktina. Mamma gaf mér þessa en hún ferðast mikið og finnur því oft svona gersemar fyrir mig erlendis.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×