Sport

Brady áhorfandi í sýningu Manning og félaga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Peyton Manning fagnar hér sigri.
Peyton Manning fagnar hér sigri. Vísir/NordicPhotos/Getty
Peyton Manning og félagar í Denver Broncos eru komnir alla leið í Super Bowl, leikinn um Ofurskálina í ameríska fótboltanum, eftir 26-16 sigur á New England Patriots í úrslitaleik Þjóðardeildarinnar í kvöld.

Denver Broncos tók völdin í upphafi leiksins og vann öruggan sigur. Frammistaða Patriots-liðsins voru mikil vonbrigði en þeir komust lítið áleiðis á móti frábæru liði Denver Broncos.

Peyton Manning stýrði sínu liði frábærlega og sá til þess að erkifjandi hans Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots, var lengstum áhorfandi í sýningu Manning og liðsfélaga hans. Denver Broncos er með þessum sigri að komast í Super Bowl í fyrsta sinn í fimmtán ár.

Denver Broncos liðið hefur farið á kostum í allan vetur og sett allskyns met ekki síst leikstjórnandinn Peyton Manning sem er nú á ný kominn alla leið í úrslitaleikinn um titilinn.

Manning kom til baka eftir hálsmeiðsli sem bundu næstum því endi á feril hans og afreki hans með liði Broncos eru því enn merkilegi fyrir vikið.

Peyton Manning kastaði boltanum 400 yarda í kvöld og gaf tvær sendingar fyrir snertimark. Tom Brady var búinn að vinna 10 af 14 leikjum þeirra félaga en Manning fagnaði í kvöld og getur nú unnið titilinn í annað skiptið á ferlinum.

Denver Broncos mætir annaðhvort San Francisco 49ers eða Seattle Seahawks í úrslitaleiknum en þau keppa til úrslita í Ameríkudeildinni í beinni á Stöð 2 Sport klukkan 23.30 í kvöld.

Tom Brady óskar Peyton Manning til hamingju með sigurinn.Vísir/NordicPhotos/Getty
Peyton Manning og þjálfarinn John Fox fagna hér sigrinum.Vísir/NordicPhotos/Getty
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×