Fótbolti

Sjáið þrennuna hans Kolbeins

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Kolbeinn Sigþórsson fór á kostum með liði sínu Ajax í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær sem lagði NAC Breda 5-2. Kolbeinn skoraði þrennu í leiknum.

Í meðfylgjandi frétt má sjá öll mörkin í leiknum en afgreiðsla Kolbeins í fyrsta markinu er sérdeilis glæsileg sem og í öðru markinu þegar hann þræðir boltann inn á nærstöngina.

Í þriðja markinu náði Kolbeinn að koma boltanum undir markvörð NAC Breda en sjón er sögu ríkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×