Skotbardagar á Vesturbakkanum Randver Kári Randversson skrifar 19. júní 2014 15:20 Ísraelskir hermenn í Hebron í dag. Vísir/AFP
Til skotbardaga kom milli Ísraelshers og Palestínumanna í dag, í mestu átökum sem orðið hafa síðan Ísraelsmenn hófu leit að þremur ungmennum sem hurfu á Vesturbakkanum fyrir viku síðan. Reuters greinir frá þessu. Að sögn Ísraelsmanna var ungmennunum, sem eru á aldrinum 16 til 19 ára, rænt af meðlimum Hamas samtakanna í nágrenni einnar af landnemabyggðum gyðinga síðastliðinn fimmtudag. Þrír Palestínumenn særðust í átökum við ísraelska hermenn í borginni Jenin í nótt þegar um 300 Palestínumenn köstuðu sprengjum og skutu á ísraelskum hermenn sem voru í leit að ungmennunum. Ísraelsku hermennirnir svöruðu með skothríð og handtóku 30 Palestínumenn. Undanfarna viku hafa Ísraelsmenn tekið 280 Palestínumenn til fanga. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, sakar Ísraelsmenn um nota hvarf ungmennanna sem átyllu til þess að ofsækja Palestínumenn og brjóta alþjóðleg mannúðarlög. Hann hefur jafnframt hvatt alþjóðasamfélagið til að fordæma aðgerðir Ísraelsmanna. Ísraelsher hefur leitað á yfir 900 stöðum á svæðinu í kringum Hebron og á Vesturbakkanum en ekkert hefur spurst til ungmennanna og enginn hefur lýst ábyrgð á brotthvarfi þeirra.
Mest lesið Sakleysi dætranna hafi gufað upp Innlent Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Erlent Biskup og prestar lýsa yfir stuðningi við Budde og boðskap hennar Innlent Leyfið heyrir sögunni til Innlent Glansmyndir á samfélagsmiðlum valdi mikilli streitu Innlent „Þau eru bara fyrir“ Innlent Fleiri Kimdátar væntanlegir í Kúrsk: „Það er bara áfram og áfram“ Erlent Fulltrúi Ísraels í Eurovision lifði af hryðjuverkaárásirnar sjöunda október Erlent Ærandi þögn og klukkan tifar Innlent Ætla að senda tíu þúsund hermenn að landamærunum Erlent Fleiri fréttir Vara við hvirfilbyljum á Bretlandseyjum Ætla að senda tíu þúsund hermenn að landamærunum Fleiri Kimdátar væntanlegir í Kúrsk: „Það er bara áfram og áfram“ Sólarorka atkvæðameiri en kolabrennsla árið 2024 Trump ætlar að skattleggja Pútín svo hann hætti stríðsrekstri í Úkraínu Fulltrúi Ísraels í Eurovision lifði af hryðjuverkaárásirnar sjöunda október Enn einn gróðureldurinn ógnar Los Angeles Á bak við hvert vandamál er barn sem líður illa Trump náðar eiturlyfjabarón huldunetsins Ný lög sögð leyfa giftingar allt að níu ára stúlkna Trump ósáttur við bón biskups um miskunn Söguleg snjókoma í suðurhluta Bandaríkjanna Verður forsætisráðherra Írlands á ný Túaregar björguðu spænskum manni úr klóm Íslamska ríkisins 76 látnir eftir eldsvoðann í Tyrklandi Allir starfsmenn jafnréttisaðgerða sendir í leyfi fyrir lok dags Íhugar að leggja viðbótartoll á allar vörur frá Kína Fjárfesta í gervigreind fyrir 70 billjónir Kæra ákvörðun Trumps: „Hann getur ekki breytt stjórnarskránni með einu pennastriki“ Yfirmaður strandgæslunnar látinn fjúka „Við erum Grænlendingar, við erum ekki Bandaríkjamenn eða Danir“ Tilnefning Hegseths samþykkt úr nefnd Náðaði fólk sem beitti lögregluþjóna ofbeldi Yfir níu kílómetrum á sekúndu á vindasömustu plánetunni Gera umfangsmikið áhlaupa á Vesturbakkanum Dularfullar kúlur innihalda ösku, mettaðar fitusýrur og saurgerla Segir Hitler-samanburð þreyttan Gera ráð fyrir að þúsundir líka sé að finna í húsarústunum 66 látnir í bruna á tyrknesku skíðahóteli Fjöldi fólks í óvissu og óöryggi eftir fyrsta dag Trump í embætti Sjá meira