Williams vill fara að vinna keppnir

Vallteri Bottas náði öðru sæti í breksa kappakstrinum og endurtók svo leikinn í þeim þýska. Finninn hafði þegar náð þriðja sæti í austurrísku keppninni. Hann er í fjórða sæti í heimsmeistarakeppni ökumanna en Williams er einnig í fjórða sæti í keppni bílasmiða.
Belgíski kappaksturinn er næstur á keppnisdagatalinu. Hann fer fram 24. ágúst. Þar á eftir kemur ítalski kappaksturinn sem fer fram 7. september.
„Það er mögulegt,“ sagði Smedley aðspurður hvort Williams gæti unnið umræddar keppnir.
Báðar brautirnar henta vel bílum með mikinn hámarkshraða. Fá lið hafa getað keppt við Williams í hraða á tímabilinu. Meira að segja Mercedes hefur ekki haft svör við hraða Williams bílanna.
„Báðar þessar brautir henta okkar bíl vel, að ég tel. Það er aðallega vegna þess að þær eru mjög hraðar, hvert hestafl sem þú hefur fram yfir aðra er meira virði þar en annarsstaðar, loftflæðið er líka mikilvægt, sérstaklega á Spa (brautin í Belgíu),“ sagði Smedley sem vill fara að sjá sigurhugarfar innan liðsins.
„Eins og ég hef oft sagt, markmið liðsins er að verða heimsmeistari, til að gera það þarf það að vinna alla. Ég held það viti allir að heimsmeistarakeppnin er frekar einsleit í ár, en það stöðvar okkur ekki í að undirbúa yfirráð á komandi árum,“ sagði Smedley.
Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Heimamaður vann á Hockenheim
Nico Rosberg á Mercedes vann þýska kappaksturinn um helgina. Það var í fyrsta sinn sem þjóðverji vinnur Formúlu 1 keppni í Þýskalandi í þýskum bíl. Hvað eru mörg Þ í því?

Daniel Ricciardo fyrstur í mark í Ungverjalandi
Daniel Ricciardo á Red Bull varð fyrstur, Fernando Alonso á Ferrari varð annar og Lewis Hamilton á Mercedes varð þriðji.

Bílskúrinn: Kristjáns-horn og klöguskjóður
Eftir gríðarlega spennandi breskan kappakstur þar sem heimamaðurinn Lewis Hamilton hjá Mercedes vann er kominn tími til að skoða Bílskúrinn, léttu hliðina á Formúlu 1 á Vísi.

Felipe Massa á ráspól í Austurríki
Felipe Massa varð fyrstur til að stöðva ráspólaröð Mercedes liðsins. Liðsfélagi hans Valtteri Bottas var annar og Nico Rosberg varð þriðji.

Bílskúrinn: Veislan í Kanada
Kanadíski kappaksturinn í ár einkenndist af drama og skakkaföllum. Dramatíkin náði nýjum hæðum og Mercedes vann ekki.

Bílskúrinn: Harmleikur heimsmeistarans
Keppnin á Red Bull Ring brautinni í Austurríki var athyglisverð fyrir margt. Hvað kom fyrir Red Bull, hvernig er stemmingin hjá Mercedes og hvernig stóðst Williams áhlaup Mercedes?