Sport

Hafdís setti Íslandsmet í 60 metra hlaupi í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hafdís Sigurðardóttir.
Hafdís Sigurðardóttir. Vísir/Auðunn
Hafdís Sigurðardóttir frjálsíþróttakona úr UFA, heldur áfram að gera það gott en hún setti nýtt Íslandsmet í 60 metra hlaupi á Sprettmóti UFA á Akureyri í kvöld.

Hafdís kom í mark á 7,64 sekúndum og bætti sitt eigð met en Hafdís hafði áður hlaupið 60 metrana best á 7,68 sekúndum. Hafdís segir frá þessu á fésbókarsíðu sinni í kvöld.

Hafdís tók metið af Sunnu Gestsdóttur í fyrra en Hafdís hefur einmitt verið dugleg að safna metum sem Sunna átti í meira en áratugi.

Hafdís hefur sett flest meta sinna fyrir sunnan eða erlendis og það var því gaman fyrir hana að setja metið á heimavelli í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×