Golf

Maður er orðinn vel sjóaður í þessu

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Kristján Þór sigraði Einvígið á Nesinu með því að næla sér í fugl á níundu holu vallarins.
Kristján Þór sigraði Einvígið á Nesinu með því að næla sér í fugl á níundu holu vallarins. Fréttablaðið/Arnþór
Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili fór með sigur af hólmi í Einvíginu á Nesinu, árlegu góðgerðargolfmóti sem Nesklúbburinn heldur árlega í samstarfi við DHL.

Tíu af bestu kylfingum landsins er boðin þátttaka en ríkjandi meistarinn, Birgir Leifur Hafþórsson, gaf ekki kost á sér að þessu sinni. Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á níundu holu. Mótið var afar jafnt og skemmtilegt og þurfti bráðabana á sex af níu holunum í einvíginu (e. shoot-out).

Heimamaðurinn Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum sigraði í höggleiknum sem fram fór fyrr um daginn en höggleikurinn er til þess að kylfingar fái tilfinningu fyrir vellinum fyrir einvígið sem fer fram seinna sama dag.

Ólafur gerði atlögu að titlinum í ár en tapaði í bráðabana fyrir Kristjáni Þór á áttundu holu einvígisins. Kristján krækti síðan í fugl á níundu holunni sem tryggði sigurinn fyrir framan klúbbhúsið.



Virkilega flott framtak

Kristján Þór var gríðarlega sáttur þegar undirritaður hitti á hann eftir mótið.

„Tilfinningin er auðvitað bara yndisleg, það er alltaf gaman að vinna golfmót og ég tala nú ekki um að vinna eitt skemmtilegasta golfmót ársins. Það voru eintómir eðalkylfingar hérna í dag og þetta var bara heilt yfir mjög skemmtilegt mót,“ sagði Kristján en í heildina safnaðist ein milljón til styrktar einhverfum börnum í ár.

„Þetta er virkilega flott framtak og DHL getur verið stolt af þessu móti.

Það mættu fleiri fyrirtæki taka þetta til fyrirmyndar, hvort sem það er í golfi, fótbolta eða öðru. Gera eitthvað einu sinni á ári til góðgerðar.“

Lék heilt yfir vel

Kristján var heilt yfir ánægður með spilamennskuna í gær.

„Þetta var mjög fínt, ég lenti aldrei í neinu veseni. Ég hafði það nokkuð náðugt og spilaði stöðugt golf. Ég lenti þrisvar í bráðabana en náði alltaf að halda haus, þetta vex með manni. Maður er orðinn svo sjóaður í þessu, maður er orðinn einn af þessum gömlu köllum,“ sagði Kristján léttur en hann sigraði á Íslandsmótinu í holukeppni fyrr á árinu. Þrátt fyrir að hann hafi lent í orðaskaki við þjálfara íslenska landsliðsins í golfi hefur hann leikið vel það sem af er sumri.

„Þetta er búið að vera mjög gott sumar, ég er ánægður með spilamennskuna sem hefur verið jöfn og góð. Þetta mál með landsliðið í vor er gleymt og grafið. Ég reyndi að nýta mér það og það efldi mig bara. Ég er búinn að enda á meðal efstu manna í öllum mótum sem ég hef tekið þátt í sumar sem er mjög ánægjulegt,“ sagði Kristján.

Örninn dugði skammt

Á sjöundu holu stal Hlynur Geir Hjartason úr GOS senunni er hann setti niður 70 metra langt vipp fyrir erni. Hann náði að taka meðbyrinn með sér á áttundu holu en lenti í vandræðum á þeirri níundu og endaði að lokum í öðru sæti.

„Þetta var rosalega skemmtilegt, ég spilaði mjög vel í dag. Ég fékk enga skolla í einvíginu. Það voru margir áhorfendur sem gerðu þetta skemmtilegasta mót ársins enn skemmtilegra,“ sagði Hlynur sem vildi fá færslu á braut á sjöundu braut áður en hann setti niður vippið.

„Ég var að vonast eftir færslu, boltinn lá illa í torfu en ég hitti boltann vel og boltinn fór beint ofaní. Ég náði að færa það yfir á áttundu holu en lenti í smá vandræðum á þeirri níundu. Ég hefði þurft smá mótvind, ég dríf ekki með brautartré en var of langur með drivernum eins og ég bjóst við,“ en boltinn hans Hlyns lá illa fyrir annað skotið á þeirri níundu og náði Kristján Þór að nýta sér það.

„Ég kláraði á fjórum undir og er bara ánægður heilt yfir. Kristján er verðugur sigurvegari og er frábær kylfingur sem á vissulega heima í landsliði Íslendinga,“ sagði Hlynur sem sagðist ætla einum lengra á næsta ári.

„Ég er búinn að koma nokkrum sinnum hingað en aldrei tekist að vinna. Það verður þá bara að koma á næsta ári,“ sagði Hlynur léttur í lund.


Tengdar fréttir

Kristján Þór vann Einvígið á Nesinu

Kristján Þór Einarsson, GKj tryggði sér sigur í Einvíginu á Nesinu, árlegu góðgerðargolfmóti, í dag. Kristján lagði Hlyn Geir Hjartarson, GOS á níundu holunni og tryggði sér sigurinn.

Myndasyrpa frá Einvíginu á Nesinu

Kristján Þór Einarsson, GKj tryggði sér sigur í Einvíginu á Nesinu, árlegu góðgerðargolfmóti, í dag en ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins myndaði skemmtilegar myndir af mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×