Westbrook frábær í endurkomuleiknum | NBA í nótt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. nóvember 2014 10:54 Leikmenn New York réðu lítið við Westbrook í nótt. vísir/afp
Leikstjórnandinn öflugi Russell Westbrook sneri aftur á körfuboltavöllinn eftir handarbrot þegar Oklahoma City Thunder vann öruggan sigur á New York Knicks í Chesapeake Energy Arena í nótt. Lokatölur 78-105, OKC í vil. Westbrook fór mikinn í endurkomuleiknum, skoraði 32 stig, tók sjö fráköst og gaf átta stoðsendingar. Amar'e Stoudmire var stigahæstur hjá New York með 20 stig, en liðið lék án Carmelos Anthony sem glímir við bakmeiðsli. Þetta var þriðja tap New York í röð, en OKC vann hins vegar tvo leiki í röð í fyrsta sinn á tímabilinu. Memphis Grizzlies stöðvaði níu leikja sigurgöngu Portland Trail Blazers með 112-99 sigri í Portland. Memphis er sem fyrr efst í Vesturdeildinni, en liðið hefur unnið 14 af 16 leikjum sínum á tímabilinu. Marc Gasol og Mike Conley fóru mikinn í liði Memphis í nótt, en liðið er ósigrað í tíu leikjum gegn liðum úr Vesturdeildinni. Gasol skoraði 26 stig, tók sjö fráköst og gaf níu stoðsendingar og Conley daðraði við þrefalda tvennu með 21 stig, tíu fráköst og níu stoðsendingar. San Antonio Spurs hefur heldur betur hrist af sér slyðruorðið eftir erfiða byrjun á tímabilinu og í nótt vann liðið sjötta sigur sinn í röð, og þann níunda í síðustu tíu leikjum, þegar Sacramento Kings voru lagðir af velli, 104-112. Annan leikinn í röð gat Gregg Popvich, þjálfari meistaranna, ekki stýrt sínum mönnum vegna veikinda, en það kom ekki að sök. Frakkinn Tony Parker stóð upp úr í jöfnu liði Spurs með 27 stig og átta stoðsendingar. Þá vann Dallas Mavericks góðan sigur á Toronto Raptors, toppliði Austurdeildarinnar, 106-102, en leikurinn fór fram á heimavelli Toronto í Kanada. Monta Ellis var stigahæstur í liði Dallas með 30 stig, en liðið er í 6. sæti Vesturdeildarinnar.Öll úrslit næturinnar: Boston Celtics 102-109 Chicago Bulls Charlotte Hornets 101-106 Golden State Warriors Atlanta Hawks 100-91 New Orleans Pelicans Detroit Pistons 88-104 Milwaukee Bucks Toronto Raptors 102-106 Dallas Mavericks Houston Rockets 85-102 Los Angeles Clippers Oklahoma City Thunder 105-78 New York Knicks Indiana Pacers 98-83 Orlando Magic San Antonio Spurs 112-104 Sacramento Kings Denver Nuggets 122-97 Phoenix Suns Portland Trail Blazers 99-112 Memphis Grizzlies Los Angeles Lakers 119-120 Minnesota TimberwolvesWestbrook var öflugur Svakaleg troðsla hjá Kenneth Faried Frábær sending hjá James Harden
NBA Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira