
„Ég var nú svolítið hissa á því að þeir skyldu þekkja hana“

Fréttablaðið birti í morgun skopmynd eftir Gunnar sem sjá má hér og vakið hefur misjöfn viðbrögð í þjóðfélaginu.
„Ég vissi svo sem að þetta gæti verið svona svolítið hættulegt að gera þetta. Venjulega hef ég verið nokkuð hlutlaus á kjördag en einhvern veginn endaði þessi svona í þetta skiptið,“ segir Gunnar í samtali við Vísi.
Hann segist telja að hlutverk hans sé aðallega að myndskreyta umræðuna í þjóðfélaginu. „Ég er ekkert að þessu til að koma mínum skoðunum á framfæri og mér finnst umræðan í þessum kosningum, síðan hún [Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina] kom inn í framboðið hafa farið í þessa átt. Það hefur ekkert verið rætt um leikskóla eða önnur mál heldur aðeins þetta.“
Kosningastjóri Framsóknar og flugvallarvina sendi í morgun frá sér yfirlýsingu þar sem hann gagnrýnir skopmyndina harðlega og segir ritstjórn blaðsins hafa með birtingu myndarinnar „opinberað hatur sitt“ á Sveinbjörgu.
Ólafur Þ. Stephensen sagðist í kjölfarið í samtali við Vísi að Fréttablaðið hefði ekki hugsað sér að biðjast afsökunar á myndinni eða að beita skopteiknarana sína neinni ritskoðun.
Gunnar segist vera sammála Ólafi. „Eru það ekki allir? Væri ekki sérkennilegt að ritskoða svona lagað? Hann gæti þá bara valið að þiggja ekki myndirnar frá mér en ég held að hann sé ekki þannig maður.“
Hann segist þó skilja vel að Framsókn hafi tekið myndinni af Sveinbjörgu illa.
„Ég var nú svolítið hissa á því að þeir skyldu þekkja hana á myndinni,“ segir Gunnar.
Tengdar fréttir

Umdeild teikning í Fréttablaðinu
Ólafur Stephensen ritstjóri segir það ekki koma til greina að biðjast afsökunar á skopmynd Gunnars Karlssonar.

Framsókn prufukeyrir andúð á innflytjendum
Síðasta útspilinu, því eina sem hefur greint Framsóknarflokkinn frá þjóðernispopúlisma, hefur nú verið spilað út.

Sigmundur Davíð vill ekki tjá sig um moskumálið
„Hann vill leyfa oddvitanum í Reykjavík að útskýra hvað hún á við,“ segir Jóhannes.

„Ég túlka þögn forystunnar þannig að ég eigi að fá að sigla þessu skipi í höfn“
Sveinbjörg Birna vill einnig draga til baka lóðaúthlutun til Ásatrúarmanna. Hún segist virða tjáningarfrelsi utanríkisráðherra og þingflokkformanns.

Stóru málin: Áhyggjur af nauðungarhjónaböndum múslima á Íslandi
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir oddviti Framsóknar í Reykjavík segir að líta verði til reynslu Norðurlandanna í trúfrelsismálum.

„Við erum ekki rasistar“
Skiptar skoðanir eru uppi innan Framsóknarflokksins um ummæli Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, oddvita flokksins í Reykjavík.

„Maður stýrir ekki borg með því að mismuna fólki eftir trúarskoðunum“
Oddvitar allra flokka í Reykjavík sem rætt var við fordæma ummæli oddvita Framsóknarflokksins um byggingu mosku.

Fólk virðir staðfestu Sveinbjargar
Fyrir nokkrum vikum þekktu fáir Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörnsdóttur. Í dag þekkja hins vegar flestir Sveinbjörgu, oddvita Framsóknar og flugvallarvina í Reykjavík. Hún vill leyfa borgarbúum að greiða atkvæði um hvort úthluta skuli lóð undir mosku í Sogamýri.

„Átti ekki von á þessu frá Framsóknarflokknum“
Formaður félags múslima á Íslandi segir að oddviti Framsóknarflokksins og flugvallarvina í Reykjavík hafi ekki hugsað málið til enda.

Gunnar Bragi segir skoðanir Sveinbjargar Birnu ekki endurspegla afstöðu flokksins
Gunnar Bragi er fyrsti ráðherra Framsóknarflokksins sem tjáir sig um málið.

Forsætisráðherra vill ekki blanda sér í umræðuna um lóðamál trúfélaga
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir í yfirlýsingu á Fésbókarsíðu sinni að hann vilji ekki blanda sér í umræðu um hvort Reykjavíkurborg eigi að gefa trúfélögum ókeypis lóðir eða ekki.

Sóley: „Framsókn á ekkert erindi í borgarstjórn“
Sóley Tómasdóttir segir Framsókn stunda pólitík sem byggi á misrétti og ali á fordómum. Það eigi ekkert erindi í borgarstjórn Reykjavíkur.

Sveinbjörg svarar fyrir sig: „Stjúpmóðir barna minna er múslimi“
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti lista Framsóknarmanna og flugvallarvina, segir að Íslendingar þurfi að læra af reynslu nágrannalandanna.

Hættu við að lýsa yfir fullkomnu vantrausti á Sveinbjörgu
Stjórn ungra Framsóknarmanna birti í gærkvöldi harðorða ályktun þar sem lýst er yfir fullkomnu vantrausti á Sveinbjörgu Birnu Sveinbjarnardóttur, oddvita flokksins í Reykjavík. Yfirlýsingin var fjarlægð skömmu síðar og engir hlutaðeigandi hafa látið ná í sig í morgun til að gefa skýringar á málinu.

Guðrún Bryndís um Framsóknarflokkinn: Moskan átti alltaf að vera kosningamál
Guðrún Bryndís Karlsdóttir segir frá tíma sínum í Framsóknarflokknum í ítarlegri grein.

Reykjavík síðdegis: „Er þetta það sem konur mega eiga von á?“
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir segir mjög leiðinlegt að hafa séð sig teiknaða í Fréttablaðinu.

Biskup Íslands fylgjandi mosku: „Finnst sjálfsagt að múslimar fái að hafa sinn helgistað“
„Ég hef ekki reynt það á sjálf á eigin skinni eða upplifað það í gegnum kirkjuna, að það séu einhver vandamál tengd múslimum. Auðvitað hefur maður heyrt þessar fréttir utan úr heimi. Mér finnst miklu mikilvægara að við Íslendingar höfum sammælst um það að hér skuli ríkja kristinn siður,“ segir biskup Íslands.

Oddviti Framsóknar vill afturkalla lóð til múslima
"Ég hef búið í um eitt ár í Sádí Arabíu og byggi þessa skoðun mína ekki á fordómum, heldur reynslu," segir Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti lista Framsóknarflokksins og flugvallarvina. Hún telur að á meðan hér á landi sé þjóðkirkja eigi ekki að úthluta lóðar til byggingu mosku eða sambærilegra húsa annarra trúfélaga.

Enn þegir Sigmundur Davíð
Vaxandi óþol er gagnvart því að forysta Framsóknarflokksins taki ekki afgerandi um afstöðu til mjög svo umdeildrar afstöðu oddvita flokksins í Reykjavík sem túlkuð hefur verið sem andúð í garð innflytjenda.

Segist ekki vera sammála oddvita flokksins - Vill þó afturkalla lóðaúthlutun
Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, sem skipar annað sæti Framsóknarflokksins, er á móti því að gefa lóðir til trúfélaga.