Sport

Verða Vetrarólympíuleikarnir 2022 færðir?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Getty
Stærstu knattspyrnufélögin í Evrópu eru farin að pressa á það að Vetrarólympíuleikarnir árið 2022 verði færðir til svo hægt sé að spila HM í Katar við "kaldari" aðstæður.

Það er búist við því að HM í Katar fari ekki fram í hinum gríðarmikla sumarhita í Katar en ákvörðun FIFA um að spila leiki í 40-50 gráðu hita í Katar hefur fengið mikla gagnrýni.

„Það er ekki búið að ákveða það hvar leikarnir fara fram," sagði Umberto Gandini, varaformaður sambands evrópskra knattspyrnufélaga, í vitalið hjá BBC. „Ég sé ekki hvernig við getum haft áhyggjur af því sem er ekki ákveðið og svo geta þeir einnig breytt dagsetningunni," sagði Gandini.

Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur lagt það til að Heimsmeistarakeppnin fari fram í nóvember og desember 2022. Það myndi hinsvegar hafa þær afleiðingar að gera þyrfti átta vikna hlé á keppni í evrópsku deildunum.

Annar möguleiki er að HM fari fram í janúar og febrúar (á sama tíma og Vetrar-ÓL) en Blatter hefur þegar lofað því að HM verði ekki sett á sama tíma og Vetrarólympíuleikarnir.

Blatter er í Alþjóðlegu Ólympíunefndinni og veit það vel að eitthvað ósætti á milli FIFA og IOC gæti þýtt að framtíð fótboltans sem Ólympíugrein væri í hættu.

„HM í janúar og febrúar kemur best út fyrir evrópsku deildirnar því margar þeirra eru með vetrarfrí. Það væri örlítið meiri lógík í því," sagði Umberto Gandini sem er yfirmaður hjá AC Milan.

„Það er ekki ómögulegt að færa Vetrarólympíuleikana um fimmtán daga og við ættum að finna lausn sem hentar ekki bara fótboltaheiminum heldur einnig öllum íþróttaheiminum," sagði Umberto Gandini.


Tengdar fréttir

Ekki útilokað að Katar missi HM 2022

Breskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að Mohammed bin Hammam hafi gerst sekur um mútur til að tryggja að heimsmeistarakeppnin í Katar verði haldin í Katar. Því gæti Katar misst HM.

Blatter vill að HM 2022 verði spilað í jólamánuðinum

Sett Blatter, forseti FIFA, er undir stöðugri pressu að komast að niðurstöðu um hvenær HM í fótbolta í Katar fari fram eftir níu ár en allir eru sammála því að það er ekki hægt að halda mótið í hitasvækjunni sem er í Katar yfir sumartímann.

HM 2022 fer fram að vetri til

Jerome Valcke, aðalritari Alþjóðaknattspyrnusambandsins, staðfesti í dag að heimsmeistarakeppnin í Katar árið 2022 muni ekki fara fram á hefðbundnum árstíma.

FIFA: Engin ákvörðun tekin enn um HM 2022

Þrátt fyrir yfirlýsingar eins hæst setta embættismanns Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, hefur engin ákvörðun verið tekin um hvort að HM 2022 í Katar fari fram að vetri til.

Sepp Blatter: Mistök að láta Katar fá HM 2022

Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur nú viðurkennt opinberlega að það hafi verið mistök hjá Alþjóðaknattspyrnusambandinu að láta Katar fá HM í fótbolta árið 2022.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×