Lífið

Kennari Robins Williams og Súpermans látinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Marian Seldes.
Marian Seldes. vísir/getty
Broadway-stjarnan og kennarinn Marian Seldes lést á heimili sínu á mánudaginn, 86 ára að aldri. Að sögn bróður hennar, Timothy Seldes, lést hún úr langvinnum veikindum.

„Það er með mikilli sorg í hjarta að ég deili þeim fréttum að mín kæra systir, Marian Seldes, er látin,“ segir Timothy í tilkynningu til fjölmiðla.

Marian steig fyrst á svið á Broadway árið 1942 í Medeu ásamt Judith Anderson. Marian var tilnefnd til Tony-verðlauna fimm sinnum á ferlinum og hlaut þau tvisvar, fyrst árið 1967 fyrir hlutverk sitt í A Delicate Balance og seinna árið 2010 en þá hlaut hún verðlaun fyrir ævistarf sitt.

Leikkonan skráði sig í Heimsmetabók Guinness fyrir að leika í hverri einustu sýningu af Deathtrap á árunum 1978 til 1982, alls 1809 sýningum. Leikkonan Catherine Russell bætti þetta met seinna með rúmlega ellefu þúsund sýningum af Perfect Crime.

Á árunum 1969 til 1992 starfaði Marian sem kennari við hinn virta Juilliard-skóla og kenndi nemendum á borð við Kevin Kline, Robin Williams, Laura Linney og Christopher Reeve heitnum, sem var hvað þekktastur fyrir að leika Súperman, leiklist.

Þá lék hún einnig í fjölmörgum kvikmyndum, þar á meðal Mona Lisa Smile, Home Alone 3 og Celebrity. Þá lék hún móður Mr. Big í sjónvarpsseríunni Sex and the City og frænku Candice Bergen í Murphy Brown.

Marian giftist tvisvar, fyrst skáldinu Julian Claman, en þau skildu árið 1961, og seinna leikskáldinu Garson Kanin sem lést árið 1999. Hún skilur eftir sig dóttur og þrjú barnabörn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×