Lífið

Bara rjómi, engin undanrenna í safninu

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Heillandi hljóð - Reynir segir niðurhalið aldrei hafa heillað sig.
Heillandi hljóð - Reynir segir niðurhalið aldrei hafa heillað sig. Fréttablaðið/Vilhelm
„Þetta verður bara rjómi, engin undanrenna,“ segir Reynir Berg Þorvaldsson, stofnandi Reykjavík Record Shop, nýrrar plötubúðar sem bráðum verður opnuð á Klapparstíg 35.

Reynir hefur safnað vínylplötum frá fermingaraldri og mun byrja á því að selja eigið safn. „Ég tek safnið mitt og fórna því til að láta drauminn rætast. Ég er með í kringum 2.000 plötur til að byrja með, nokkrar fágætar perlur, t.d. mikið af sjaldgæfu indí-rokki og íslenskum bitum – gömlu íslensku pönki og proggrokki. Það verða margir plötusafnarar sem eiga eftir að finna eitthvað fyrir safnið.“

Búðin mun selja nýjan og notaðan vínyl ásamt nýjum íslenskum geisladiskum. Að sögn Reynis verður Lucky Records á Rauðarárstíg fyrirmyndin, þar sem hann hefur unnið áður og lært ýmislegt. „Fólk er að koma frá útlöndum til að fara í Luckys og mig langar að gera jafn vel. Þetta verður bara smærra í sniðum – lítil kósí plötubúð.“

En hvað er það sem heillar við vínyl?

Samkvæmt tölfræðinni hefur salan á vínyl aukist til muna á undanförnum árum. „Það er fyrst og fremst hljóðið. Það er einfaldlega miklu flottara og meira heillandi hljóð á vínyl. Síðan er safnaraþáttur í þessu – þú heldur á listaverkinu í höndunum og nýtur þess sem heildar. Vínyllinn er miklu eigulegri, þetta niðurhal hefur aldrei heillað mig.“

Stefnt er á að opna búðina í næstu viku en opnunardagurinn verður tilkynntur á Fésbókarsíðu búðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×