Skoðun

Af málefnavinnu pírata og ýktri einsemd oddvita

Kjartan Jónsson skrifar
Laugardaginn 5. apríl birtist frétt á visir.is um að oddviti pírata í Reykjavík hefði verið sá eini sem mætti á málefnafund hjá pírötum í borginni þann sama dag. Síðar sama dag kom ítarlegri umfjöllun á sama miðli þar sem raktar voru ástæður þessa – fundartímanum hafði verið breytt með of litlum fyrirvara. Næsta mánudag á eftir, undir liðnum „Frá degi til dags“, kom svo stutt klausa um oddvitann einmana án útskýringa eða samhengis. Það kom mér á óvart að þetta þætti fréttnæmt – datt reyndar fyrst í hug að um einhverja Þórðargleði blaðamanns væri að ræða. En eftir smá umhugsun gat ég séð að mögulega mætti mjólka úr málinu einhverja fréttagildistutlu – píratar eru jú, samkvæmt skoðanakönnunum, að mælast með virðulegt tveggja tölustafa fylgi og mæta sterkir til leiks.

Mér hefði þó fundist það metnaðarfyllri blaðamennska að grafast aðeins meira fyrir um málið – athuga hvort þetta væri einsdæmi, hvernig málefnavinnan stæði, hve margir hefðu komið að þessari vinnu, o.s.frv. Þá hefði orðið til ólík en kannski ekki eins „sexí“ frétt. Nú hef ég setið ófáa málefnafundi hjá Reykjavíkurfélagi pírata undanfarnar vikur og mánuði og telst mér til að þeir séu orðnir vel á þriðja tuginn. Þátttakendur í raunheimum telst mér að séu samtals á fimmta tuginn og enn fleiri, sé tekið tillit til framlags nokkurra þátttakenda í gegnum netið. Hygg ég að hvaða flokkur sem er væri fullsæmdur af slíkri þátttöku – en hví að skemma svona skemmtilega frétt með leiðinlegum staðreyndum?

Annars er nálgun pírata í gerð stefnumála, hvort sem það er fyrir alþingis- eða bæjar- og sveitarstjórnakosningar, sú að leggja aðaláherslu á að auka skilning á sýn og sjónarhorni pírata og á aðferðafræði þeirra. Skilji maður þá nálgun; sjónarhorn gegnsæis, ábyrgðar, borgararéttinda, beins lýðræðis, o.s.frv. er hægt að sjá fyrir afstöðu pírata í hinum ýmsu og oft á tíðum ófyrirsjáanlegu málum sem geta komið upp á vettvangi stjórnmálanna. Skilji maður hvernig hjarta píratans slær, skilur maður hvernig hann sér heiminn og tekur afstöðu. Aðferðarfræðin felur í sér áherslu á opið og gagnsætt ferli – sé ferlið í lagi verður niðurstaðan „rétt“.

Til þess að gera stefnuna enn aðgengilegri hefur verið lagt í mikla vinnu í að útfæra hin ýmsu svið borgarmálanna. Þá vinnu hefur þurft  að vinna frá grunni – við getum ekki, eins og sumir, dustað rykið af gömlum stefnuskrám og skellt þeim fram lítt breyttum. Hluti þessarar stefnu hefur þegar verið samþykktur í kosningakerfi pírata og annar hluti hennar er nú í kosningu. Að lokum: Þeir sem hafa fundið til vorkunnar yfir einmanaleika okkar ágæta oddvita í Reykjavík geta nú andað léttar – hann er umkringdur hópi úrvalsfólks.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×