Úkraínska þingið hafnaði afsögn Yatseniuk Randver Kári Randversson skrifar 1. ágúst 2014 12:09 Arseny Yatseniuk, forsætisráðherra, og Petro Porosjenko, forseti, ræðast við eftir atkvæðagreiðsluna í úkraínska þinginu. Vísir/AP
Úkraínska þingið hafnaði í gær afsögn Arseny Yatseniuk, forsætisráðherra, sem sagði af sér embætti í síðustu viku í kjölfar þess að tveir samstarfsflokkar gengu úr ríkisstjórninni. Lög voru samþykkt til að fjármagna herta sókn hersins gegn aðskilnaðarsinnum og forða ríkinu frá greiðslufalli. Með ákvörðun þingsins er útlit fyrir að Yatseniuk njóti trausts til að gegna áfram lykilhlutverki í tilraunum til að leysa deiluna milli Úkraínu og Rússlands. Óttast var að afsögn Yatseniuks í síðustu viku myndi auka á pólitískan óstöðugleika í landinu og valda óvissu um hvort Úkraína myndi standa við skilyrði alþjóðlegs samkomulags um efnahagslega aðstoð til ríkisins. Á vef Reuters kemur fram að þingið hafi nú tryggt hernum aukafjárveitingu að andvirði 758 miljónir dollara til að herða sókn hersins gegn aðskilnaðarsinnum. Fyrr í mánuðinum endurheimti herinn borginga Slavians og sækir nú fram í Donbass-héraði, sem liggur að landamærum Rússlands. Einnig voru samþykktar nauðsynlegar breytingar á fjárlögum til að forða úkraínska ríkinu frá greiðslufalli á erlendum skuldbindingum sínum. Með því hefði ríkið orðið af frekari greiðslum úr björgunarpakka Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem á 17 milljarða dollara.
Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Atburðarás gærdagsins í myndum Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Fleiri fréttir Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Sjá meira