Innlent

Hafa ekki enn náð samkomulagi

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/gva
Ekki náðist samkomulag í kjaradeilu framhaldsskólakennara í dag en fundur samningarnefndar lauk nú fyrir stundu.

Verkfall í framhaldsskólum mun því halda áfram en það hófst síðastliðin mánudag.

Fundað var frá tíu í morgun en samningaviðræður þokast hægt áfram.

Yfir tuttugu þúsund nemendur eru því enn frá námi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×