Lífið

Phil Spector sýnir skallann

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Á tveimur nýjum fangamyndum af tónlistargoðsögninni Phil Spector sést að Phil hefur elst hratt síðan hann var dæmdur í fangelsi árið 2009.

Á myndunum sést að Phil er orðinn nánast sköllóttur en þeir sem þekkja til kauða eru vanari að sjá hann með heilmikið hár, oftar en ekki hárkollu.

Phil, sem er orðinn 73 ára, var dæmdur í nítján ára fangelsi, sem gæti teygst í lífstíðardóm, fyrir morðið á leikkonunni Lönu Clarkson árið 2003.

Phil hélt fram sakleysi sínu og lögfræðingar hans vörðu hann með því að segja að Lana hefði tekið eigið líf því það gekk ekkert í leiklistinni hjá henni.

Phil var mikils virtur í tónlistarbransanum á árum áður og pródúseraði poppslagara á borð við Da Doo Ron Ron, Be My Baby og He's a Rebel.

Mynd tekin árið 2009.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×