Lífið

Giftu sig í laumi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Jeremy er prívat náungi.
Jeremy er prívat náungi. vísir/getty
Leikarinn Jeremy Renner gekk að eiga kærustu sína, Sonni Pacheco, fyrir stuttu.

Í nýlegu viðtali á sýningu nýjustu myndar hans, Kill the Messenger, talaði hann um Sonni sem eiginkonu sína og staðfesti í framhaldinu að þau væru gift.

„Ég hef reynt að vernda einkalíf fjölskyldu minnar, einkalíf eiginkonu minnar. Ég vil ekki að hún sé ónáðuð út af mínum málum,“ segir Jeremy.

Þau Sonni eignuðust sitt fyrsta barn, dótturina Övu Berlin Renner, í mars á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×