Lífið

Heiðar Austmann lét laga nefið eftir tíu ára bið

Ellý Ármanns skrifar
Heiðar Austmann.
Heiðar Austmann.
Það er ekki sjón að sjá Heiðar Austmann fyrrum útvarpsmann FM957 eins og sjá má á myndunum.  Við heyrðum í Heiðari og spurðum hvað í ósköpunum gerðist?

 „Það gerðist ekkert. Ég bara að lét verða af því að laga nefið. Ég var nefbrotinn fyrir um tíu árum og nefið hefur verið í ólagi síðan,“ svarar Heiðar.  

„Ég var í vandræðum á næturna og vaknaði með kæfisvefn og svona. Þess vegna ákvað ég að láta verða af þessu enda nefið brotið upp og pússlað saman aftur.“



Heiðar er marinn en bataferlið er hafið.


Þú varst með ósköp fallegt nef en þú ert áberandi mikið bólginn?
 

„Það er loksins beint núna og ég er hættur að lykta fyrir horn,“ segir hann og hlær en bætir við öllu alvarlegri:

„Fyrsta nóttin var svaka slæm. Parkódín forte-taflan fór svo illa í mig. Ég kastaði upp og við það framkallaðist blæðing. Ég var alveg ónýtur enda stór aðgerð.“ 

Hvernig hefur þú það núna? „Ég er á batavegi. Vinstra augað var nánast lokað en loksins get ég andað með nefinu en þó aðeins smástund í einu. Þetta er tveggja til þriggja vikna bataferli. Fyrstu 5 -7 dagarnir eru verstir.“ 

En ertu búinn að ráða þig í nýja vinnu? „Nei en það er margt skemmtilegt í pípunum. Margir að hafa samband. Ég er heima að njóta lífsins með fjölskyldunni,“ segir Heiðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×