Lífið

"Ástin í lífi mínu lést í gær“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Mæðginin á góðri stundu.
Mæðginin á góðri stundu. vísir/getty
Loretta Phillips Stamos, móðir leikarans John Stamos, er látin, 75 ára að aldri. John sagði frá því á Instagram í gær.

„Ástin í lífi mínu lést í gær á heimili sínu, umvafin börnum sínum og barnabörnum,“ skrifar John við gamla mynd af Lorettu haldandi á leikaranum þegar hann var kornungur.

„Hún var svo sannarlega einstök og lifir að eilífu í hjörtum okkar sem þekktum hana,“ bætir John við.

John biður þá sem vilja minnast móður sinnar að gefa pening í The Vanguard Cancer Foundation, góðgerðarsamtök sem stofnuð voru af móður hans. Hún missti bróður sinn úr krabbameini og er markmið samtakanna að umönnun krabbameinssjúklinga sé betri og persónulegri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×