Lífið

Tobba skellti sér í fríið

Hanna Ólafsdóttir skrifar
Tobba Marínós.
Tobba Marínós. mynd/visir
Hin nýbakaða móðir, Tobba Marínós , skellti sér í sólina í vikunni ásamt kærasta sínum, Karli Sigurðssyni, sem oft er kenndur við Baggalút. Einnig er með í för tæplega þriggja mánaða gömul dóttir þeirra sem hefur fengið nafnið Regína Birkis Karlsdóttir.

Fjölskyldan nýtur nú lífsins í sólstrandarbænum Salou á Spáni, og safnar kröftum fyrir komandi vetur en ekki veitir af þar sem uppselt er á alla jólatónleika Baggalúts í vetur og eftirspurn eftir aukatónleikum er mikil. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×