
„Það er dapurlegt að sjá að stjórnarflokkarnir ætli að draga til baka þá fjármuni sem höfðu sérstaklega farið í að bregðast við því neyðarástandi sem blasti við,“ segir Ágúst Ólafur. Nefndin skilaði frá sér tillögum sem sneru að bættum úrbótum í þessum málaflokki. Samþykkt var að leggja 79 milljónir í tillögur nefndarinnar. Í nýju fjárlagafrumvarpi er ljóst að skorið verður töluvert niður í þeim tillögum. „Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu missir 30 milljónir sem tryggja áttu skilvirk úrræði fyrir þolendur þessara brota, ríkissaksóknari missir 10 milljónir sem voru eyrnamerktar starfinu, lögreglustjórinn á Suðurnesjum missir sínar 10 milljónir eins og Fangelsismálastofnun gerir og þá missir ríkislögreglustjóri sínar þrjár milljónir sem áttu að fara í þennan málaflokk,“ segir Ágúst.
Meðal þess sem ekki er gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu er sérstök meðferð fyrir gerendur kynferðisbrota sem snúa að börnum. Sérfræðingur hafði verið ráðinn í fulla stöðu hjá Fangelsismálastofnun sem átti að vinna að því að búa til og kortleggja meðferðir fyrir þennan hóp. „Hluti þessara fjármuna átti til dæmis að fara í að þróa bæði meðferðarúrræði og áhættumat fyrir gerendur en einnig í að þróa úrræði fyrir þá sem hugsanlega eru að hugsa um að brjóta á börnum. En það er vandi sem er auðvitað ekki leystur enda á eftir að dæma eitthvað af þessum gerendum fari málin til dóms,“ segir Ágúst.

Hann segir stofnunina hafa bundið miklar vonir við þetta úrræði sem og önnur sem nefndin kom með. „Ég er algjörlega sammála niðurstöðum þessa vinnuhóps en það er niðurskurður hér eins og annars staðar.“
Ágúst segir einkennilegt að skorið sé niður í þessum málaflokki. Vandinn hafi verið brýnn og mikilvægt að leysa þessi mál. „Að þessi mál séu ekki í forgangi er með ólíkindum en ekki eru þetta háar upphæðir sem um ræðir. En það er enn tími til að kippa þessu í liðinn því frumvarpið er í höndum einstakra stjórnarþingmanna. Þeir geta breytt þessu ef þeir vilja,“ segir hann.