Tónlist

Skírðu sveitina í höfuðið á veiðiflugu

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Dusty Miller heldur upp á útgáfu frumburðar síns í Tjarnarbíói um helgina.
Hljómsveitin Dusty Miller heldur upp á útgáfu frumburðar síns í Tjarnarbíói um helgina. fréttablaðið/stefán
„Það verður öllu tjaldað til og verðum við með Rósu Guðrúnu Sveinsdóttur og Kristjönu Stefánsdóttur í bakröddum, Ara Braga Kárason á trompet, Steinar Sigurðarson á saxófón, Kára Hólmar Ragnarsson á básúnu og Ásmund Jóhannsson á slagverk, til að lífga enn frekar upp á flutninginn,“ segir Tómas Jónsson, hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Dusty Miller.

Spurður út í nafn hljómsveitarinnar segir Tómas það koma úr nokkrum áttum en aðallega úr veiðiflugubransanum. „Elvar er mikill veiðimaður og benti okkur á þetta fagra nafn sem hann rakst á í skemmtilegri veiðiflugnabók.“

Sveitin kemur fram á útgáfutónleikum í Tjarnabíói á laugardagskvöldið næstkomandi.

„Við byrjuðum sem fusion/bræðingshljómsveit og lékum meðal annars lög eftir Mezzoforte og fleiri slíkar sveitir en skiptum aðeins um gír þegar söngvarinn og píanistinn Elvar Örn Friðriksson gekk til liðs okkur,“ segir Tómas kátur. Ásamt þeim Elvar Erni og Tómasi skipa sveitina Aron Ingi Ingvason trommuleikari, Kári Árnason bassaleikari og Rögnvaldur Borgþórsson gítarleikari.

Music by Dusty Miller er fyrsta plata hljómsveitarinnar Dusty og var hún tekin upp í september 2012, í Stúdíói Paradís og kom út fyrir skömmu.

Sveitin var stofnuð veturinn 2011 og tæpu ári seinna var lagt í gerð þessarar fyrstu plötu.

Meðlimir sveitarinnar eru, þrátt fyrir ungan aldur, nokkuð reyndir þátttakendur úr íslensku tónlistarlífi og hafa undanfarin ár spilað með hljómsveitum á borð við Fjallabræður, Jón Jónsson, ADHD og Perlu.

„Tónlistinni á plötunni okkar, sem inniheldur tíu lög, hefur verið lýst sem sálarskotnu hreðjapoppi,“ útskýrir Tómas. Þess má til gamans geta að sveitin fjármagnaði plötu útgáfuna sjálf.

Semja allir meðlimir sveitarinnar tónlistina? „Það er allur gangur á því, en á þessari hljómplötu semur Elli mest en við hinir höfum jafnt og þétt fært okkur upp á skaftið,“ segir Tómas.

Tónleikarnir verða haldnir í Tjarnarbíói og mun húsið opna klukkan 21.00. Miðaverð í forsölu verður 1.500 krónur og 2.000 krónur við innganginn. Einnig verður hægt að kaupa miða og plötu á 3.000 krónur við innganginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×