Tónlist

Aukatónleikar til heiðurs Genesis

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Genesis-hópurinn er skipaður fagfólki og kemur fram á tvennum tónleikum í Salnum í Kópavogi.
Genesis-hópurinn er skipaður fagfólki og kemur fram á tvennum tónleikum í Salnum í Kópavogi. mynd/aron berndesn
Vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum til heiðurs Genesis. Gensesis-hópurinn ætlar að flytja valin lög af Genesis-plötunni The Lamb Lies Down on Broadway.

Platan var sjötta hljómplata hljómsveitarinnar Genesis og kom út árið 1974. Hún var jafnframt sú síðasta sem Peter Gabriel tók þátt í.

Hljómplatan vakti mikla athygli og þá ekki síður tónleikaferðin sem fylgdi í kjölfarið. Flestir Genesis-aðdáendur þekkja væntanlega lög eins og Firth of Fifth, Lamia, Counting Out Time, Dancing with the Moonlit Knight og fleiri.

Einnig verður flutt úrval af eldri og yngri lögum hljómsveitarinnar.

Genesis-hópinn skipa: Arnar Sebastian Gunnarsson, söngur, Árni Steingrímsson, gítar, Bjarni Þór, söngur, Björn Erlingsson, bassi, Don Eddy, þverflauta, saxófónn, gítar og hljómborð, Jósep Gíslason, píanó og hljómborð, Nathalie Eva Gunnarsdóttir, söngur, og Sigurður Guðni Karlsson, trommur og slagverk.

Aukatónleikarnir fara fram 8. febrúar en uppselt er á fyrri tónleikana sem eru 1. febrúar. Miðasala er hafin á midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.