Tíska og hönnun

Fléttuböndin renna út eins og heitar lummur

Marín Manda skrifar
Hulda Dögg Atladóttir hönnuður
Hulda Dögg Atladóttir hönnuður
Um síðustu helgi mátti sjá Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur skarta fallegu fléttuðu hárbandi þegar hún var kynnir á Söngvakeppni RÚV. Einnig báru þær Gréta Mjöll Samúelsdóttir, Ásta Björg Björgvinsdóttir og Bergrún Íris Sævarsdóttir fléttubönd um kvöldið en þær eru konurnar á bakvið lagið Eftir eitt lag.

„Það eru allir svo sætir með þetta að ég er rosalega glöð að sjá fólk með böndin,“ segir Hulda Dögg Atladóttir sem hannar fléttuböndin vinsælu ásamt Lindu Ósk Guðmundsdóttur.

Þær reka verslunina Leynibúðina á Laugavegi og hanna föt og fylgihluti undir merkinu Deathflower. Þegar talið berst að nafninu svarar Hulda Dögg: „Við vorum með sitthvort merkið áður en við fórum í samstarf en skeyttum saman áherslur okkar. Linda Ósk var mikið að vinna með svarta liti og var á kafi í hauskúpum á meðan ég var upptekin af litum og blómum.“

Fléttuböndin eru gerð úr kjólavelúr. Þau eru teygjanleg og fást í fjölmörgum litum í Leynibúðinni en einnig í versluninni Kistu á Akureyri, Fantom í Hafnarfirði, Tivo á Selfossi og Kaupmanninum á Ísafirði.

Fléttuböndin vöktu athygli um síðustu helgi þegar Ragnhildur Steinunn kynnir Söngvakeppninnar á RÚV bar slíkt á skjánum.
Fléttuböndin koma í mörgum spennandi litasamsetningum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×