Tónlist

Fjölskyldan saman á útgáfutónleikunum

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Rúnar Þórisson ásamt dætrum sínum tveimur Lára og Margréti, Arnari Þór Gíslasyni, Guðna Finnssyni og Birki Rafni Gíslasyni. Þau koma fram á tónleikum í kvöld.
Rúnar Þórisson ásamt dætrum sínum tveimur Lára og Margréti, Arnari Þór Gíslasyni, Guðna Finnssyni og Birki Rafni Gíslasyni. Þau koma fram á tónleikum í kvöld. mynd/Kristín Pétursdóttir
„Fjölskyldan mín leikur með mér á tónleikunum, dætur mínar tvær syngja og spila á hljómborð og píanó, svo verða þær líka með mennina sína með sér þannig að þetta verður mjög skemmtilegt,“ segir tónlistarmaðurinn Rúnar Þórisson en hann heldur upp á útgáfu þriðju sólóplötu sinnar í kvöld í Iðnó.

Það má með sanni segja að um músíkalska fjölskyldu sé að ræða en dætur Rúnars, þær Lára og Margrét radda og syngja hvor sitt lagið á plötunni og koma þær fram með föður sínum á tónleikunum. Báðar eru þær velkunnar og virkar í tónlistarbransanum og hafa komið fram með ýmsum hljómsveitum. Sambýlismenn og eiginmenn þeirra, þeir Arnar Þór Gíslason trommuleikari og Birkir Rafn Gíslason gítarleikari koma einnig fram á tónleikunum. Guðni Finnsson sem er í raun fóstbróðir Arnars Þórs leikur á bassa.

„Já, það mætti alveg segja að Guðni sé fóstbróðir Arnars þar sem þeir eru saman í nánast öllu og þekkja vel hvor annan. Á plötunni eru einnig blásarar, strengir og kvennakór í nokkrum lögum en ég ætla bara að halda mig við fjölskylduna og hafa þetta frekar fjölskylduvænt og um leið rokkað,“ segir Rúnar um tónleikana.

Á plötunni Sérhver vá má heyra glitta í gítarhljóm sem minnir óneitanlega á hljóm sem heyrðist þegar hljómsveitinni Grafík er ljáð eyra en Rúnar var og er einmitt gítarleikari þeirrar sveitar eins og flestir vita.

Grafík kom saman árið 2011 á Aldrei fór ég suður og gefin var út heimildarmynd um hljómsveitina það ár, „ætli það sé ekki skýringin á því að gamli gítarhljómurinn komi fram á plötunni.“ Rúnar byrjaði einmitt að vinna í nýju plötunni það sama ár.

Rúnar hefur nú gefið út þrjár sólóplötur og segist hafa á fyrri sólóplötum leitað annarra leiða hvað varða spilastílinn en einkenndi Grafík en hann hafi á nýju plötunni opnað fyrir allt.

Söngur Rúnars heyrist vel á nýju plötunni. „Þetta er fyrsta sólóplatan sem ég syng inn á aðalsöng. Ég kann vel við mig við míkrófóninn, maður fær mikla útrás í söngnum, sérstaklega þegar maður semur textana,“ útskýrir Rúnar. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem hann syngur aðalsöng því hann söng nokkur lög á fyrstu tveimur plötum Grafíkur á árum áður.

Fyrir utan að semja öll lögin á plötunni samdi Rúnar alla textana. „Textarnir skipta mig miklu máli og eru flestir persónulegar hugleiðingar um lífið og tilveruna.“ Platan er tileinkuð konu Rúnars, Örnu Vignisdóttur.

Tónleikarnir fara fram í Iðnó í kvöld og hefjast klukkan 20.30.

Miðasala fer fram á midi.is og í Iðnó á milli kl 11.00-16.00 í dag og við innganginn fyrir tónleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×