Tíska og hönnun

Blundar hönnuður í þér?

Marín Manda skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir bloggari.
Elísabet Gunnarsdóttir bloggari.
Spennandi fatahönnunarkeppni er fram undan á vegum Trendnets, Coca-Cola Light og Reykjavík Fashion Festival.

„Þetta er fatahönnunarkeppni fyrir alla sem hafa einhvers konar áhuga á fatahönnun og vilja spreyta sig. Framleiðsla er svo dýr fyrir hönnuði svo þetta er fínt tækifæri fyrir unga rísandi hönnuði því það er 250 þúsund króna verðlaunafé,“ segir Elísabet Gunnarsdóttir, annar eigandi vefsíðunnar Trendnet.is. 

Keppnin er haldin á vegum Coca-Cola Ligt í samstarfi við Trendnet.is og Reykjavík Fashion Festival. Þátttakendur eru hvattir til þess að senda inn ljósmynd af fullunnu fatasetti eða flík á trendlight@vifilfell.is en skráningu til þátttöku lýkur 16. mars.

„Það eru engar reglur en vinningsdressið verður til sýnis á RFF í Hörpu laugardaginn 29. mars. Dómnefnd skipa aðilar frá Fagráði RFF, Trendneti og Coca-Cola Light svo að þetta er mjög skemmtilegt samstarf,“ segir Elísabet. Þá verða valdir þrír þátttakendur í undanúrslit og fer hönnun þeirra í netkosningu á samskiptamiðlinum Facebook.

RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.