Tónlist

Mannréttindi í Úganda styrkt

Páll Óskar Hjálmtýsson kemur fram á tónleikunum.
Páll Óskar Hjálmtýsson kemur fram á tónleikunum. Mynd/einkasafn
Samtökin 78 & Íslandsdeild Amnesty International, ásamt nemum í tómstunda- og félagsmálafræði standa fyrir tónleikumí kvöld til styrktar mannréttindum í Úganda.

Mannréttindi hinsegin fólks í Úganda eru fótumtroðin og nú á dögunum var frumvarp þar í landi samþykkt sem kveður á um lífstíðarfangelsi við samkynhneigð í landinu. Með því hefur rótgróið hatur og mismunum gagnvart þeim sem eru eða teljast hinsegin, fest í sessi.

Samtökin "78 og Íslandseild Amnesty International styðja úgönsk grasrótarsamtök hinsegin fólks í mannréttindabaráttu þeirra fyrir réttindum sínum.

Á tónleikunum koma fram Hinsegin kórinn, Sigga Beinteins & Stjórnin, Páll Óskar, Sykur og Retro Stefson.

Kynnar verða Bjarni Snæbjörnsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir.

Þá mun Felix Bergsson mun flytja ávarp.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 í Hörpu. Miðaverð verður 2.000 krónur og rennur allur ágóði óskiptur til hinsegin fólks í Úganda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.