Tíska og hönnun

Litrík Skvetta á vegginn hjá þér?

Marín Manda skrifar
Haukur Már Hauksson
hönnuður er ánægður að hafa komið hugmyndinni í framkvæmd
Haukur Már Hauksson hönnuður er ánægður að hafa komið hugmyndinni í framkvæmd Fréttablaðið/Daníel
 Haukur Már Hauksson hönnuður hannar fatahengi fyrir ungu kynslóðina og þau fást í fimm litum sem hann kallar vatn, mjólk, súkkulaði, jarðaberjasheik og slím.

„Maður hefur verið svona eins og skúffuhönnuður en svo ákvað ég skella þessu í framkvæmd, settist niður og teiknaði og að lokum fæddist Skvetta. Mig vantaði hengi í forstofuna hjá mér sem þurfti að vera einfalt og færi ekki mikið fyrir,“ segir Haukur Már Hauksson, hönnuður og teiknistofustjóri á auglýsingastofunni Pipar TBWA.

„Sem betur fannst konunni minni það líka skemmtilegt svo ég fékk að hengja þetta upp. Þetta er hugsað fyrir ungt fólk, krakka og þá sem eru ungir í anda,“ segir hann og hlær.

Hönnun er stór partur af lífi Hauks Más en hann var í stjórn Hönnunarmiðstöðvarinnar þangað til í fyrrasumar og situr nú í stjórn Hönnunarsjóðs.

„Það er synd hve lítill peningur er settur í hönnun, þetta eru algjörir smáaurar. Það þarf ekkert svo mikið í stóra samhenginu en það er einhver kraftur sem drífur íslenska hönnuði áfram sem gefast ekki upp. Kannski er það einhver partur af íslenskri menningu að bíta eitthvað í sig og hætta ekki fyrr en takmarkinu er náð.“

Hengið er til sölu í Kraumi, Epal og Ólátagarði og fæst í fimm litum: vatn, mjólk, súkkulaði, jarðarberjasjeik og slím.

Græni liturinn kallast Slím.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×