Úkraínski blaðamaðurinn Vitalii Sediuk er 25 ára og komst fyrst í kastljósið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum árið 2011 þegar hann rétti söngkonunni Madonnu vönd af brunahana þó að hann vissi fullvel að henni mislíkaði sú blómategund. Vakti það litla lukku hjá söngkonunni heimsfrægu.
Síðan þá hefur hann gert í því að angra fræga fólkið á galaviðburðum, nú síðast í Los Angeles þann 28. maí þegar hann kýldi stórleikarann Brad Pitt á frumsýningu kvikmyndarinnar Maleficent. Vitalii vann fyrir úkraínsku sjónvarpsstöðina 1+1 en var rekinn fyrir nokkrum vikum síðan.
Vitalii var dæmur í sex mánaða fangelsi þegar hann kom sér uppá svið á Grammy-verðlaununum í fyrra þegar söngkonan Adele tók við verðlaunum sínum sem besti sólólistamaðurinn. Náði Vitalii að tjá ást sína á söngkonunni í hljóðnemann í beinni útsendingu öllum að óvörum.
Hann náði að forðast fangelsisvist með því að segjast ætla að haga sér í þrjú ár og stíga aldrei fæti inn í L.A. Live, hús sem hýsir Staples Center og Nokia Theatre - loforð sem hann hefur ekki staðið við.
„Það eru aðeins tveir stórir viðburðir í L.A. Live á ári: Emmy- og Grammy-verðlaunin. Ég held að ég lifi af að sækja ekki þessa viðburði. Það er svo mikið að gerast í Los Angeles,“ sagði Vitalii í viðtali við Hollywood Reporter rétt eftir að hann slapp við fangelsisvistina.
„Tilgangur minn er að skemmta fólki og sýna aðra hlið á fræga fólkinu. Ég er ekki geðveikur. Ég hugsa bara öðruvísi,“ bætti hann við.
Stuttu eftir Grammy-verðlaunin reyndi hann að komast inn á Óskarsverðlaunahátíð í svanakjól í anda Bjarkar okkar Guðmundsdóttur en var handtekinn af lögregluþjónum áður en hann komst á rauða dregilinn.
Fjölmiðlar víðs vegar um heiminn eru lítt hrifnir af Vitalii. Vulture hefur líst honum sem Borat án gáfna og gríns en Uproxx hefur gengið svo langt og kallað hann viðrini. Þá hefur The Wire kallað hann mennskt rusl. Breska ritið Daily Mail lítur á hann sem plágu á rauða dreglinum.
Eftir athæfi hans á frumsýningu Maleficent var Vitalii handtekinn og settur í gæsluvarðhald. Þá fékk Brad Pitt einnig lögbann á Vitalii en lögfræðingur hans, Anthony Willoughby segir í samtali við AP-fréttastofuna að Vitalii sé ekki hættulegur.
„Hann er ekki ofbeldisfullur. Hann er afslappaður, ungur maður.“
Blaðafulltrúinn Christa Sherck vann með Vitalii síðustu tvö ár en hefur nú slitið öllum tengslum við hann.
„Þetta er meira en stríðni. Þetta hefur ekki lengur skemmtanagildi,“ segir hún í viðtali við AP-fréttastofuna. Það er því spurning hvort Vitalii þurfi nú að afplána fangelsisdóm, bæði fyrir líkamsárás á Brad Pitt og fyrir að svíkja fyrrnefnt loforð eftir Grammy-verðlaunin.
Haukar
Galychanka Lviv