Tíska og hönnun

Nýjar töskur í tískumynd

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Smekklegt að bjóða upp á hanska í stíl við töskuna.
Smekklegt að bjóða upp á hanska í stíl við töskuna.
Tískurisinn Dior er búinn að sýna þriðja hlutann af tískumyndinni sinni Secret Garden.

Sviðsmyndin er Versalir í París í Frakklandi og sjást fyrirsæturnar Daria Strokous, Fei Fei Sun og Katlin Aas hlaupa um höllina og garð hennar.

Bera fyrirsæturnar fallegar handtöskur sem margir aðdáendur merkisins bíða eflaust spenntir eftir að fari í sölu.

Secret Garden-herferðin verður einnig í prentmiðlum og munu auglýsingar birtast til að mynda í japanska og franska Vogue í júní.

Þessi taska passar við allt.
Tískumyndin er einstaklega glæsileg.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×