Tíska og hönnun

Ofurhetjutöskur frá Stellu McCartney

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Þessi taska er meðal annars í nýju línunni.
Þessi taska er meðal annars í nýju línunni. Vísir/Getty
Fatahönnuðurinn Stella McCartney frumsýndi snemmsumarlínu sína fyrir árið 2015 í New York í vikunni.

Skær mynstur, sterkir litir og dýramynstur einkenna línuna en meðal þess sem er að finna í línunni eru töskur í öllum stærðum og gerðum sem eru innblásnar af ofurhetjum.

Margt var um manninn þegar Stella kynnti línuna og voru fyrirsæturnar Cara Delevingne og Jourdan Dunn og leikkonurnar Amber Heard og Maggie Gyllenhaal meðal gesta.

Stella með fyrirsætunum sínum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×