Tíska og hönnun

Götutískan á Glastonbury

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Hinni árlegu Glastonbury-tónlistarhátíð lauk um helgina og á meðal listamanna sem tróðu upp voru John Grant, Dolly Parton, Metallica og Lana del Rey. 

Fjölmargar stjörnur lögðu leið sína á hátíðina eins og fyrri ár og var útihátíðartískan afar litrík að þessu sinni.

Tónlistarkonan Lily Allen mætti í regnbogalitaðri skyrtu og með fríkað hár.
Söngkonan Eliza Doolittle í hressandi dressi.
Vinkonurnar Jaime Winstone og Alexa Chung létu sig ekki vanta.
Fatahönnuðurinn Stella McCartney í öllu svörtu og hermannagrænum stígvélum.
Cressida Bonas, fyrrverandi kærasta Harry prins, rölti pollróleg um svæðið.
Fyrirsætan Daisy Lowe bauð upp á friðarmerki.
Tónlistarfólkið og bestu vinirnir Florence Welch og Sam Smith kíktu vel skóuð á hátíðina.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×