Allir eiga nefnilega séns Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 5. september 2014 16:00 "Minn metnaður liggur i að sem flestir fái að kynnast ánægjunni sem felst í því að syngja,“ segir Sólveig Unnur. Fréttablaðið/GVA „
Markmið skólans er að allir geti þar fundið söngnám við sitt hæfi, hvort sem fólk er að læra ánægjunnar vegna eða til að ná lengra sem atvinnusöngvarar.“ Þetta segir Sólveig Unnur Ragnarsdóttir söngkennari um skólann sinn Vocalist sem er á efstu hæð á Laugavegi 178. Hún kveðst kenna þar allt frá klassík til þungarokks. „Kennslan byggist upp á Complete Vocal Technique en sú tækni er orðin mjög vinsæl meðal söngvara á Íslandi og víða um Evrópu og er talin áhrifarík og fljótvirk,“ segir hún. Reyndar hóf Sólveig Unnur starfsemi Vocalist um síðustu áramót og þá með einkatíma en nú víkkar hún sviðið verulega og býður líka upp á þrenns konar námskeið. Þau nefnast Reynsluboltinn, Sturtusöngvarinn og Sá laglausi og standa frá 18. september til 5. desember. Þessa dagana hrannast fólk til hennar í ókeypis prufutíma, syngur fyrir hana og kynnir sér námsframboðið. „Reynsluboltinn er námskeið fyrir þá sem hafa einhverja reynslu af að syngja í kór eða sem einsöngvarar. „Mig langar að kynna tæknina Complete Vocal Technique fyrir þeim,“ útskýrir Sólveig Unnur og lýsir fyrirkomulaginu. „Í Reynsluboltanum er unnið í hóp. Einn fer upp og syngur og ég leiðbeini söngvaranum með það sem hann vill ná fram en hinir nemendurnir fylgjast með í tímunum. Fólk lærir svo mikið á að hlusta á aðra.“ Námskeiðin Sá laglausi og Sturtusöngvarinn byggjast upp á hóptímum þar sem fyrirlestrar eru um raddbeitingu, að sögn Sólveigar Unnar. „Svo eru einkatímar þess á milli þar sem fólk vinnur með tæknina í eigin söng. Það eiga nefnilega allir séns,“ fullyrðir hún. „Minn metnaður liggur í að sem flestir fái að kynnast ánægjunni sem felst í því að syngja.“ Spurð hvort henni þyki ekki þreytandi að hlusta á laglaust fólk syngja fyrir sig allan daginn, svarar Sólveig Unnur: „Ég er þolinmæðismanneskja og mér finnst gaman að upplifa persónulega sigra hvers og eins. Fólk hefur brostið í grát í tímum hjá mér, það eru svo miklar tilfinningar sem fylgja því að hafa verið álitinn laglaus en geta sungið.“ Hún telur meint lagleysi fólks ekki lélegu tóneyra að kenna heldur þjálfunarleysi og skorti á raddtækni. „Til eru dæmi um færustu píanista sem halda ekki lagi,“ segir hún. Fólk getur pantað einkatíma hjá Sólveigu Unni, keypt staka tíma eða fimm og tíu tíma kort. „Það hentar þeim uppteknu sem geta ekki komið á vissum tíma í hverri viku,“ bendir hún á og kveðst einnig ætla að vera með unglinganámskeið fyrir 12 til 16 ára, plús helgarnámskeið.“ Það er ljóst að hún er að skapa sér næg viðfangsefni því fyrir utan að reka Vocalist kennir hún söng við Tónlistarskóla Vestmannaeyja tvisvar í viku og á því mikið undir góðum samgöngum milli lands og Eyja. Sólveig Unnur er með söngkennarapróf (DipLRSM) frá Söngskólanum í Reykjavík og hefur klassískan bakgrunn sem söngkona og kennari. Nú stundar hún framhaldsnám í Complete Vocal Technique við Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn og stefnir á að útskrifast þaðan með kennararéttindi vorið 2015. Hún hefur starfað sem söngkennari og stjórnandi söngdeildar við Tónlistarskóla Vestmannaeyja síðastliðin fimm ár og tekið þátt í tónlistarlífi bæjarins.
Mest lesið Miðaldra kveikjur: Hlutir sem benda til þess að þú sért miðaldra Lífið Einhleypan: Vandræðalegt þegar þeir eru giftir eða í sambandi Lífið Óskarsverðlaunahafi óléttur í annað sinn Lífið Stjörnulífið: Ástin, afmæli og stórir draumar Lífið Allt í búðinni í boði - gjafabréf frá Maí stórsniðug jólagjöf Lífið samstarf Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur Lífið Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Lífið „Finnst oft eins og ég hafi drukkið sorgina með móðurmjólkinni“ Lífið Er alltaf hrædd Lífið „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Lífið Fleiri fréttir „Finnst oft eins og ég hafi drukkið sorgina með móðurmjólkinni“ Stjörnulífið: Ástin, afmæli og stórir draumar Miðaldra kveikjur: Hlutir sem benda til þess að þú sért miðaldra Óskarsverðlaunahafi óléttur í annað sinn Einhleypan: Vandræðalegt þegar þeir eru giftir eða í sambandi Bein útsending: Bingó Blökastsins Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni Sjá meira