Lífið

Skrýtið að leika karlmann og vera á túr

Anna Katrín/Rökkvi, Gréta Kristín/Þór, Íris Tanja/Eddi, Guðmundur/Sigga flipp, Jóhann Kristófer/Sólveig, Sigurbjartur/Birta Björt, Ólafur/Veró, Katrín Halldóra/Siggi Birgis, (fremri röð) Viktoría Blöndal/Fiddi bagg og Nína/Gabríel, en allt eru þetta krakkar á öðru og þriðja ári á leikarabraut eða sviðshöfundabraut.
Anna Katrín/Rökkvi, Gréta Kristín/Þór, Íris Tanja/Eddi, Guðmundur/Sigga flipp, Jóhann Kristófer/Sólveig, Sigurbjartur/Birta Björt, Ólafur/Veró, Katrín Halldóra/Siggi Birgis, (fremri röð) Viktoría Blöndal/Fiddi bagg og Nína/Gabríel, en allt eru þetta krakkar á öðru og þriðja ári á leikarabraut eða sviðshöfundabraut. MYND/Víðir Guðmundsson
„Við erum í áfanga í skólanum sem heitir Skipt um kyn,“ segir Viktoría Blöndal, nemandi á þriðja ári í Fræðum og framkvæmdum í Listaháskólanum, en áfanginn er kenndur af leikurunum Maríu Pálsdóttur og Víði Guðmundssyni.

„Í þessum áfanga erum við að kynnast toppnæs hlutum um hitt kynið. Við förum út til dæmis og horfum á hreyfingar hjá hinu kyninu og hvernig þau bregðast mismunandi við í mismunandi aðstæðum,“ útskýrir Viktoría, en námskeiðið er valnámskeið og er kennt í tvær vikur í byrjun annar.

Viktoría blöndal Segir Fidda Bagg vera kominn til að vera. MYND/Úr einkasafni
„Síðan sköpum við okkar eigin karakter og þeir eru flestir ótrúlega fyndnir og áhugaverðir. Þær týpur sem hafa sprottið upp úr þessu eru B5-djammtýpan, spænskur bifvélavirki, félagslega heftur munntóbaksunnandi, maður sem glímir við forhúðarþrengingu, „goth“-stelpa sem stundar nám í húsgagnasmíðum og flippuð miðaldra kona sem fer til Ibiza á froðudiskó. Þetta er sem sagt þverskurður af þjóðfélaginu,“ segir Viktoría og hlær.

Hún segir jafnframt að hennar karakter, sem er félagslega heftur munntóbaksunnandi, hafi komið algjörlega af sjálfu sér. 

„Ég lagði upp með að vera svalur fótboltapungur, en í staðinn kom félagslega heftur Breiðhyltingur sem hangir í Mjóddinni og elskar munntóbak. Þannig að ég hlýt að vera glataður munntóbaksunnandi inn við beinið,“ segir Viktoría, létt í bragði, og bætir við að þau ráði ekki beint ferðinni þegar karaktersköpunin fer fram. 

„Þetta er allt byggt á spuna og þessir karakterar mætast því þau unnu öll í Neskaffi- og Bylgjuleik. Svo skapast fjörlegar umræður og senur. Ég hugsa að þessi karakter muni lifa eitthvað áfram. Hann hefur til dæmis verið að spreyta sig í dansi,“ segir Viktoría.

„Það er samt óneitanlega skrítið að leika karlmann og vera á túr.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×