Lífið

Töffaraskapurinn mun ná nýjum hæðum

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Gwen Stefani
Gwen Stefani Vísir/Getty
Fatahönnuðurinn og fyrrum No Doubt-söngkonan Gwen Stefani vinnur að nýrri plötu um þessar mundir, en síðasta plata hennar, The Sweet Escape, kom út árið 2006.

Mun enginn annar en Pharrell Williams vinna með Stefani að plötunni. Williams sagði að hann hlakkaði mikið til að vinna með svona miklum snillingi sem henni og að töffaraskapur hennar myndi ná nýjum hæðum á plötunni.

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Williams og Stefani vinna saman, en síðast unnu þau saman að slagaranum Hollaback Girl sem kom út árið 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×