Porosjenkó boðar aukna sjálfsstjórn austurhéraðanna Guðsteinn Bjarnason skrifar 11. september 2014 06:30 Í austanverðri Úkraínu segjast harðir aðskilnaðarsinnar enn stefna á að lýsa yfir sjálfstæði. Nordicphotos/AFP
Petró Porosjenkó, forseti Úkraínu, boðar frumvarp um aukna sjálfsstjórn austurhéraðanna. Hann vonast til að geta jafnvel lagt frumvarpið fram strax í næstu viku, en gæti átt erfitt með að finna orðalag sem fengi víðtækan stuðning á þinginu. Hann tók fram að hann hefði engan áhuga á því að Úkraína yrði sambandsríki, eins og bæði rússneskir ráðamenn og aðskilnaðarsinnar í austurhéruðunum hafa lagt mikla áherslu á. „Úkraína hefur ekkert gefið eftir hvað varðar óskert umráðasvæði landsins,“ sagði Porosjenkó á ríkisstjórnarfundi sem sýndur var í beinni sjónvarpsútsendingu. Þrátt fyrir aukna sjálfsstjórn austurhéraðanna verði þau áfram óaðskiljanlegur hluti landsins. Hann fullyrti að eftir að vopnahléssamkomulag var gert á föstudaginn hefðu um 70 prósent rússneskra hermanna, sem voru innan landamæra Úkraínu, horfið aftur til Rússlands. Jafnframt hefðu uppreisnarmenn látið 700 úkraínska fanga lausa og von væri til þess að 500 til viðbótar fengju frelsið fyrir lok vikunnar. Þrátt fyrir vopnahléið hafa átök brotist út nærri daglega það sem af er vikunni. Átökin í austanverðu landinu, sem hófust í apríl síðastliðnum, hafa kostað meira en 2.500 manns lífið.
Mest lesið Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Dæmdir í tengslum við einn stærsta stuld Íslandssögunnar Innlent Lækka laun bæjarfulltrúa og takmarka opnunartíma í sundi til að borga kennurum Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira