Lífið

Lífið mælir með

Netverslunum hefur fjölgað gríðarlega síðustu misseri og nú hafa nokkrar vel valdar vefverslanir tekið sig saman og ætla að halda uppskotsmarkað (pop up) til að sýna og selja sínar vörur. Kjörið tækifæri fyrir viðskiptavini til að sjá vörurnar með eigin augum.

Þær verslanir sem standa að markaðnum eru Andarunginn.is, Esja Dekor, Nola.is, Petit.is og Snúran.is. Markaðurinn fer fram á Kexi Hosteli milli 12-18 á morgun.

Hljómsveitin Hjaltalín blæs til tónleika á Húrra annað kvöld kl. 22. Sveitin hyggst frumflytja ný lög í bland við eldra efni og lofar miklu stuði eins og henni einni er lagið með söngkonuna Sigríði Thorlacius í broddi fylkingar. Þetta eru síðustu tónleikar Hjaltalín í bili en hún ætlar að taka sér smá hlé til að klára nýtt efni í hljóðverinu.

Í kvöld og á morgun fer fram Októberfest í tjaldi fyrir utan Háskóla Íslands. Fram koma meðal annars Agent Fresco, Kiriyama Family, Reykjavíkurdætur og Amabadama. Hægt er að kaupa miða á Midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×