Lífið

Leitar að konum í karlastörfum

Viktoría Hermannsdóttir skrifar
Sandra mun ræða við konurnar um þeirra upplifun af því að gegna þeim störfum sem frekar eru kennd við karlmenn.
Sandra mun ræða við konurnar um þeirra upplifun af því að gegna þeim störfum sem frekar eru kennd við karlmenn. visir/GVA
„Ég ætla að ræða við konur sem hafa valið sér að fara í störf sem talin hafa verið hefðbundin karlastörf,“ segir Sandra Hlín Guðmundsdóttir, meistaranemi í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands.

Sandra vinnur að meistararannsókn sem snýr að konum sem hafa starfað í því sem myndi flokkast sem hefðbundin karlastörf.

„Ég mun ræða við þær um þeirra upplifun, hverjir séu kostir þess að vera kona í hefðbundnu karlastarfi og hverjir séu neikvæðu þættirnir við það. Ég mun einnig ræða við þær um þann stuðning sem þær fengu í starfi, ef einhver var, og hvort þær hefðu viljað fá stuðning.

Ástæðan fyrir því að ég er að gera þessa rannsókn er sú að mig langar að kanna hvort náms- og starfsráðgjöf geti veitt konum sem fara í hefðbundin karlastörf eða nám sem tengist þeim einhvern stuðning, ásamt því að bæta náms- og starfsfræðslu, þá sérstaklega með tilliti til þess þegar einstaklingar velja sér nám eða starf sem er talið óhefðbundið fyrir þeirra kyn,“ segir hún.

Sandra óskar sérstaklega eftir að komast í kynni við konur sem unnu slík störf á árunum 1980-90 og svo mun hún bera það saman við konur sem sinna slíkum störfum í dag. Nú þegar hafa nokkrar konur sett sig í samband við Söndru en viðtölin mun hún taka 25. september til 30. október. Þær konur sem hafa áhuga á að taka þátt í rannsókninni geta haft samband við Söndru á netfangið shg2@hi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×