Tíska og hönnun

Systurnar stefna á Asíumarkað

Kristín Maríella og Áslaug Íris Friðjónsdætur.
Kristín Maríella og Áslaug Íris Friðjónsdætur.
„Þetta er augljóslega mikill heiður og það er víst barist um stað á þessum sýningum hjá versluninni,“ segir Kristín Maríella Friðjónsdóttir sem ásamt systur sinni Áslaugu Írisi Katrínu, skipar hönnunarteymið Twin Within.

Um síðustu helgi tóku þær þátt í tískusýningu á vegum einnar stærstu tískuvefverslunar í Suður-Asíu, Gnossem.com, sem haldin var á Formúlu 1-keppni.

„Ég komst í samband við stofnanda og eiganda Gnossem.com, Lisu Crosswite, hérna úti og hún var svo hrifin af Twin Within að hún bauð okkur að sýna festarnar á þessari F1-sýningu,“ segir Kristín sem er búsett í Singapúr ásamt sambýlismanni sínum, Orra Helgasyni, og dóttur þeirra.

„Þetta var það fyrsta af þremur sýningarkvöldum og þarna voru um það bil 2.500 manns sem horfðu á sýninguna.“

Fjölmargir fylgdust einnig með formúlunni, meðal annars kokkurinn Gordon Ramsay sem þau hittu þegar þau fóru út að borða.

„Hann sat á næsta borði. Við spjölluðum aðeins og hann sagðist koma árlega til Íslands að veiða,“ segir Kristín. Hún er ánægð með sýninguna.

„Vonandi verður þetta til þess að fleiri tækifæri bjóðast Twin Within í framhaldinu en stefnan er tekin á Asíumarkaðinn. Á döfinni er að koma festunum í framleiðslu og þær koma í verslanir á Íslandi og víðar fyrir jólin.“

Festar systranna hafa verið vinsælar en þær hafa verið framleiddar í takmörkuðu upplagi hingað til.


Tengdar fréttir

Íslenskar systur í mest lesna blaði Seattle

Systurnar Kristín Maríella og Áslaug Íris Friðjónsdætur hafa heldur betur slegið í gegn með skartgripalínunni Twin Within sem þær sendu frá sér í nóvember síðastliðnum. Kristín segir viðbrögðin ekki hafa látið á sér standa og þær systur eru í skýjunum yfir velgengninni, en hálsmenin hafa selst eins og heitar lummur.

Setja nýja línu af hálsfestum á markað í dag

Systurnar Kristín og Áslaug kynna í dag klukkan 17 grafískar og litríkar hálsfestar sínar í GK á Laugavegi. Þær kalla sig Twin Within og vörulínan heitir City Collection.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×