Lífið

förðundjarfir augnskuggar og falleg húð

Margrét R. Jónasar, eigandi Make Up Store á Íslandi.
Margrét R. Jónasar, eigandi Make Up Store á Íslandi.
Margrét R. Jónasardóttir, förðunarmeistari og eigandi Make Up Store á Íslandi, er ein sú allra reyndasta í förðuninni hér heima. Hún fylgist alltaf vel með förðuninni á tískuvikunni og því sem er heitast hverju sinni.

Rauðar varir

Auðveldasta leiðin til að uppfæra snyrtibudduna er að fjárfesta í djúprauðum varalit. Það allra vinsælasta á litaskalanum fyrir haustið eru dökkrauðir, burgundy og vínrauðir litir. Tískuhús eins og Antonio Marras, Zac Posen og Ralph Lauren sýndu skemmtilegt litróf í rauðum varalitum.

Málmgljáaáferð og glimmer

verður afgerandi í haust fyrir augu, neglur og varir. Þá er frábært að nota Mixing Liquid-vökvann í augnskugga og augnskuggaduft til að framkalla þessa málmkenndu áferð á augu og á varir. Einnig til að festa glimmer á augu eins og á tískusýningu Altuzarra.

Djarfir litir

Augnskuggarnir eru að breytast og það eru að koma inn meiri litir eins og bláir, grænir, fjólubláir og appelsínugulir eins og sáust á tískusýningarpöllunum hjá Burberry og Kenzo í vetur. Uppáhaldslitirnir hjá mér núna eru rauðbrúnir, ljósvínrauðir eins og Louder, Strong og Hero frá Make Up Store.

Falleg húð og „highlight“

Lýtalaus ljós postulínsáferð á húð eins og hjá hönnuðum eins og Givenchy, Alexander McQueen og Akris. Base Prep-grunnurinn frá Make Up Store er upplagður til að ná fram þessari frísklegu áferð. Endingin á farðanum verður enn betri þegar Base Prep er sett undir. Ofan á farðann er fallegt að bera á Illuminizer og „highlight”-tríóið

Þóra Kristín Þórðardóttir,förðunarfræðingur hjá MAC Debenhams var að vinna á tískuvikunni í Danmörku.

Vel nærð og falleg húð

Það sem mér fannst mest áberandi var vel nærð húð. Við notuðum til dæmis Mineralized Moisture Gel-kremið frá MAC og Moisture Infusion-serumið, en það gefur svakalega góðan raka og næringu. Mineralized Moisture-farðinn var mest áberandi en hann gefur fallega „döggvaða“ húð með perluáferð og með honum Mineralized-hyljararnir.

Mjúkir kremlitir og „smokey“



Allar kremaðar vörur koma sterkar inn bæði á kinnar og augu.

Creamcolour base og Paint pot verða vinsæl í öllum litum á augu og kinnar og sem „highligt“. BB-bronzerarnir frá MAC eru snilld til þess að ná fram mjúkri skyggingu á andlitið. Á augum var mikið um „smudgy smokey“ og gloss á augnlok. Þetta týpíska bjútíútlit er á útleið, og nú er eyelinerinn orðinn mýkri og blýantar mikið notaðir.

Stórar og náttúrulegar augabrúnir

Augabrúnir spila stórt hlutverk í haust og fer meiri tími í þær nú en áður. Þær eiga að vera náttúrulegar, fallega mótaðar með örlítið ljósari augabrúnablýant en þínar brúnir. Við erum með mikið úrval af litum hjá okkur en svo er trixið að nota augabrúnagel í aðeins dekkri tón til þess að fá þrívíddarhrif á brúnirnar.

Mattar varir og varablýantar

Það sem kemur svo sterkt inn í vetur eru 90‘s-varir, sem þýðir blýantar með öllum litum alltaf! Brúnir og drappir mattir tónar eru allsráðandi. Á Fashion week voru mjúkar og glansandi varir líka mjög áberandi.

Vísir/Getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×