Lífið

Solla Stirða er í uppáhaldi

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Önnu Þórörnu fannst leikararnir í sýningunni standa sig mjög vel.
Önnu Þórörnu fannst leikararnir í sýningunni standa sig mjög vel. vísir/valli
Anna Þórarna Agnarsdóttir er sex ára og fór á leiksýninguna Ævintýri í Latabæ í Þjóðleikhúsinu. Solla stirða er uppáhaldspersónan hennar í Latabæ og hún mælir með sýningunni fyrir alla krakka því hún er svo skemmtileg. 

Hafðir þú lesið sögur um Latabæ eða horft á sjónvarpsþættina áður en þú fórst á sýninguna?

Ég hef oft horft á sjónvarpsþættina en bara lesið bækurnar þegar ég var lítil.

Hvernig fannst þér sýningin vera í samanburði við það?

Leikritið er skemmtilegra en sjónvarpsþættirnir og bækurnar eru minnst skemmtilegar því þegar maður les þær veit maður ekki hvað persónurnar eru að segja nema þegar er verið að lesa fyrir mann.

Hver var uppáhaldspersónan þín? Og af hverju?

Solla stirða er uppáhaldspersónan mín í Latabæ af því að hún er í bleiku og af því að hún er stelpa en Íþróttaálfurinn er líka uppáhalds af því að hann og Solla stirða verða svo góð í æfingum. Skemmtikraftarnir voru fyndnastir og skemmtilegastir enda voru þeir ekki Skemmikraftar heldur Skemmtikraftar.

Hvernig fannst þér leikararnir standa sig?

Íþróttaálfurinn var duglegur að kenna öllum í leikhúsinu æfingar, líka áhorfendum. Svo voru leikararnir fyndnir og skemmtilegir og duglegir að dansa og syngja. 

Anna Þórarna segir leikarana í sýningunni vera fyndna, skemmtilega og duglega að dansa og syngja.vísir/andri
Hvernig fannst þér leikmyndin og búningarnir?

Búningarnir voru flottir en leikmyndin og húsin á sviðinu voru flott og líka fjólublái bíllinn. 

En tónlistin?

Skemmtileg. Uppáhaldslagið mitt er 1, 2, 3, áfram Latibær. Það er líka gaman að syngja það þó að maður sé ekki að horfa á Latabæ. 

Hvað stóð að þínu mati upp úr í sýningunni?

Lagið sem Solla söng var langbest í allri sýningunni. Þá var líka allt bleikt. Svo var rosalega fyndið þegar Íþróttaálfurinn datt ofan í holuna. 

Myndirðu mæla með þessari sýningu fyrir aðra krakka og ef já, hvers vegna?

Já, það myndi ég gera. Út af því að ég vil að hinir krakkarnir viti að það sé verið að sýna Latabæ og því ég vil að þau viti hvað sýningin er skemmtileg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×