Mótmælendur hóta hertum aðgerðum Freyr Bjarnason skrifar 2. október 2014 07:15 Einn þeirra sem hafa krafist lýðræðisumbóta í Hong Kong hrópar slagorð yfir hóp mótmælenda á götu skammt frá höfuðstöðvum stjórnvalda í Hong Kong. Fréttablaðið/AP
Leiðtogar mótmælenda í Hong Kong vöruðu við því að ef æðsti yfirmaður Hong Kong segði ekki af sér í gær myndu þeir fjölga mótmælaaðgerðum sínum, þar á meðal leggja undir sig þó nokkrar mikilvægar byggingar stjórnvalda. Þar með eiga mótmælendur á hættu að lenda í átökum við lögreglu því ólíklegt er að hún leyfi þeim að leggja undir sig byggingarnar án fyrirhafnar. Með yfirlýsingu sinni hafa mótmælendur einnig sett þrýsting á kínversk stjórnvöld. Þau hafa hingað til sagt mótmælaaðgerðirnar vera ólöglegar og stutt tilraunir Leung Chun-ying, framkvæmdastjóra Hong Kong, til að binda enda á þær. Hann var viðstaddur athöfn þar sem fáni var dreginn að húni í tilefni þjóðhátíðardags Kínverja í gær. Fyrir athöfnina hrópuðu nokkur hundruð mótmælendur á Chun-ying og kröfðust þess að hann segði af sér embætti. Þegar athöfnin hófst sneru þeir baki við því sem fram fór. Xi Jinping, forseti Kína, hefur hingað til verið harður í afstöðu sinni gegn öllum þeim sem ógna veldi kommúnistaflokksins. Í þjóðhátíðarræðu sinni hét hann því að tryggja hagsæld og stöðugleika í Hong Kong. Aukinn fjöldi fólks tók þátt í mótmælunum í gær, enda var um frídag að ræða. Talið er að tugur þúsunda hafi verið á götum úti.
Mest lesið Slysið í Stykkishólmi alvarlegt Innlent Ellefu tímar sárþjáður á bráðamóttöku Innlent Karlmaður um sextugt lést í vinnuslysi Innlent Örfáar raddir nýti sér Kveik sem vopn gegn skátum Innlent Veitir samstarfsflokkunum nokkurra sólarhringa frest Innlent Barn ógnaði lögreglumanni með eftirlíkingu af skammbyssu Innlent Skófundur á Everest gæti leyst hundrað ára gamla ráðgátu Erlent Ríkisstjórnin á hengiflugi Innlent Ísland má ekki vera söluvara erlendra glæpagengja Innlent „Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra“ Innlent Fleiri fréttir Skófundur á Everest gæti leyst hundrað ára gamla ráðgátu Kynferðisofbeldið sýnt í dómsal Eftirlifendur kjarnorkusprengjanna hlutu friðarverðlaun Nóbels Dreifðu ösku látins félaga í auga Miltons Réttarhöld yfir Diddy hefjast 5. maí 2025 Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Peskov staðfestir að Rússar hafi fengið Covid-próf frá Bandaríkjunum Ethel Kennedy er látin Tíu létust þegar Milton fór yfir Flórída Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Gerðu andlitsmynd af stærstu pöddu jarðsögunnar Þrettán látist vegna Marburg-veiru og ekkert bóluefni til Hefur ekki enn þorað út í morgun Enn varað við ofsaveðri en hreinsunarstörf hafin Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Skotárás við ísraelskt fyrirtæki í Gautaborg Flugstjórinn lést í miðri flugferð Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ Gætu ekki flúið þótt þau vildu Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ Sjá meira