Lífið

Kynnist spennandi hlutum í Vasaljósi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þáttastjórnendurnir, Kristín Ísafold er sú í rauðu buxunum og bláu peysunni. Hin eru Marteinn Elí Brynjólfsson, Mira Kamallakharan, Salka Gústafsdóttir, Katla Njálsdóttir og Alex Leó Kristinsson.
Þáttastjórnendurnir, Kristín Ísafold er sú í rauðu buxunum og bláu peysunni. Hin eru Marteinn Elí Brynjólfsson, Mira Kamallakharan, Salka Gústafsdóttir, Katla Njálsdóttir og Alex Leó Kristinsson. Fréttablaðið/Stefán
Hvað gerir þú í Vasaljósi, Kristín Ísafold? „Ég er einn af umsjónarmönnunum en er líka með innslag sem heitir „Á kollinum hjá Kristínu Ísafold.“

Varstu líka með þáttinn í fyrra og hvernig kom það til að þú byrjaðir? „Í fyrra var ég ekki umsjónarmaður heldur bara með viðtölin. Ég fór í prufur til Brynhildar og Kristínar Evu og fékk ekki hlutverk umsjónarmanns en þeim leist svo vel á mig að þær buðu mér að vera með þessi viðtöl Á kollinum.“

Er gaman að vera með sjónvarpsþátt og af hverju? „Það er mjög gaman, það er svo margt nýtt sem maður fær að prófa og kynnast og gera alls kyns spennandi hluti.“

Hvernig er samkomulagið í hópnum? „Fínt. Mér semur mjög vel við hina krakkana.“

Eruð þið búin að taka upp marga þætti? „Í fyrra vorum við með tíu þætti og þeir verða líka tíu núna, en ég veit ekki hversu margir af þeim eru tilbúnir, en að minnsta kosti fyrsti þátturinn.“

Hver er eftirminnilegasti viðmælandinn þinn? „Það er örugglega hann Stúfur, hann var svo skemmtilega skrítinn í viðtalinu.“

Gerðir þú eitthvað eftirminnilegt í sumarfríinu, annað en vinna í Vasaljósi? „Ég fór til Danmerkur með fjölskyldunni þar sem við gerðum alls kyns skemmtilegt eins og að fara á ströndina, í Tívolí og dýragarðinn.“

Hvert er uppáhaldsfagið þitt í skólanum? „Stærðfræði og sund.“

Hvað gerir þú í frístundum? „Ég er í Sönglist en svo leik ég mér bara með vinkonum mínum. Við búum til dæmis oft til myndbönd í iPad-inum.“

Áttu gæludýr og ef svo er þá hvert? „Ég á gullfiska með systkinum mínum.“

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Svo ótrúlega margt en helst langar mig að verða leik- og söngkona og dýralæknir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×