Lífið

Húðflúr til heiðurs aðdáendum

Flúrið Lady Gaga segir flúrið vera til heiðurs aðdáendum sínum.
Flúrið Lady Gaga segir flúrið vera til heiðurs aðdáendum sínum.
Lady Gaga er búin að fá sér nýtt húðflúr og segist hafa fengið sér það til heiðurs aðdáendum sínum. Söngkonan birti mynd af húðflúrinu, sem er á bakinu á henni, á Instagram-síðu sinni og merkti myndina með kassamerkinu #Monster4Life en hún kallar aðdáendur sína litlu skrímslin sín.

Hún skrifaði svo á Twitter að húðflúrið hefði hún fengið sér til heiðurs aðdáendum sínum. „Ég fékk mér þetta húðflúr til þess að heiðra aðdáendur mína, þið eruð sérstök, traust og ég er auðmjúk á hverjum degi yfir því hversu heppin ég er að eiga ykkur að,“ skrifaði hún á samskiptasíðuna. Þetta er ekki fyrsta húðflúrið sem Gaga fær sér en húðflúrlistamaðurinn Eric Gonzales hefur gert á hana nokkur flúr.

Lady Gaga er þekkt fyrir að vera í góðu sambandi við aðdáendur sína. Núna er hún stödd í Þýskalandi á tónleikaferðalagi.

Þar hefur hún vakið athygli líkt og endranær fyrir skrautlega búninga og hefur söngkonan gefið sér góðan tíma til þess að spjalla við þýska aðdáendur sína. Þeir hafa fært henni hinar ýmsu gjafir, meðal annars sérsaumaðan kodda með myndum af söngkonunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×